Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög

Read Full Article →

Innlent | mbl | 26.2.2026 | 23:34 | Uppfært 23:53 Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög Steinn Jóhannsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, tilkynnti forráðamönnum barna í Ölduselsskóla um lokunina í bréfi í dag. Samsett mynd/Reykjavíkurborg/mbl.is/Eggert Setja bókamerki Skólahald í öllum árgöngum Ölduselsskóla í Seljahverfi í Reykjavík og frístundastarf 1. og 2. bekkjar fellur niður á morgun vegna ófyrirséðra breytinga sem snúa að framkvæmdum sem standa yfir í skólanum. Þetta kemur fram í bréfi sviðsstjóra- skóla og frístundasviðs Reykjavíkurborgar til foreldra og forsjáraðila barna í skólanum. Frístundastarf 3. og 4. bekkjar fer fram utan skólans og verður með óbreyttum hætti á morgun. Í bréfinu útskýrir Steinn Jóhannsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs, að gera hafi þurft breytingar og skipta um einn framkvæmdaraðila. Það hafi borið brátt að og í því sambandi þurfi að tryggja aðstæður, setja aftur upp öryggisgirðingar og þrífa rými innan skólans. Tekið er fram í bréfinu að ákvörðunin sé tekin með hagsmuni og öryggi barna og starfsfólks að leiðarljósi. Frétt af mbl.is Gæti þurft að loka öllum skólanum vegna myglu Harðorða ályktun starfsfólks Fyrr í dag barst forráðamönnum barna í skólanum bréf frá starfsfólki og stjórnendum skólans þess efnis að kennslu lyki fyrr í dag vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Vísað var til sömu framkvæmda og í bréfi sviðsstjóra og tekið fram að vinnu yrði lokið seinni partinn í dag. Leiða má líkum að því að ályktun frá starfsmannafundi í skólanum, sem fram fór í dag, hafi orðið til þess að sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs felldi niður skólahald á morgun. Í ályktuninni, sem mbl.is hefur undir höndum, fer starfsfólk fram á að Reykjavíkurborg trygggi öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi fyrir starfsfólk og nemendur og krefst þess að tafarlaust verði gert hættumat og skrifleg áætlun um hvernig tryggja eigi öryggi og heilbrigði á vinnustaðnum. Starfsfólk telur vinnuumhverfið með þeim hætti að vinnuveitandi hafi brotið gegn lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Frétt af mbl.is Loka í annað sinn vegna myglu á 10 árum Myglugró dreifst um skólann með tilheyrandi hættu Í ályktuninni er það rakið að mygla hafi greinst í skólanum síðasta vor. Þar með hafi miklar framkvæmdir hafist og mikið þrengt að starfsemi skólans. Settar voru upp öryggisgirðingar og annar öryggisbúnaður til að koma í veg fyrir slys og að myglugró og önnur heilsuspillandi efni myndu dreifast um bygginguna. „Sá öryggisbúnaður hefur verið tekinn niður í miðjum framkvæmdum og má því ætla að myglugró og önnur heilsuspillandi efni hafi dreift sér um skólann með tilheyrandi hættu fyrir nemendur og starfsfólk,“ segir í ályktuninni. Þar kemur einnig fram að mikill hávaði sé vegna framkvæmdanna, bæði innan húss og utan. Þá segir frá opnum óvörðum skurðum, hellum og steypubrotum. Þannig telji starfsfólk Ölduselsskóla vinnuumhverfið hættulegt og heilsuspillandi bæði starfsfólki og nemendum og treystir sér ekki til að vinna þar og taka ábyrgð á nemendum. Starfsfólk segist óttast bæði um heilsu og öryggi nemenda og starfsmanna. Frétt af mbl.is Ekki varað við myglunni Virða beri líðan og stöðu starfsfólks Segir starfsfólkið tímabært að líðan og staða starfsmanna sé virt og það komi viðbrögð við óskum sínum. Undir ályktunina rita trúnaðarmenn kennara og almennra starfsmanna og tveir öryggistrúnaðarmenn. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Árás á orkuinnviði Norðurlanda sögð yfirvofandi Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög Byggja á síðustu sjávarlóðinni á Seltjarnarnesi Segir Íslendinginn besta þjálfara í heimi Gullsmiður ákærður fyrir peningaþvott Umræðan Gagnsæi í verðlagningu í vinnslu og útgerð Óhagkvæm borgarlína Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjöldi útkalla: Strætó fór út af á Holtavörðuheiði Vegagerðin skoðar breytingar eftir atvikið í gær Kosningum flýtt í Danmörku Kostnaður við götuhreinsun eykst Mest lesið Í gær Í vikunni Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Útskrifaður af sjúkrahúsi Fangavörður grunaður um brot í starfi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Nýjast á mbl.is » Árás á orkuinnviði Norðurlanda sögð yfirvofandi Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög Byggja á síðustu sjávarlóðinni á Seltjarnarnesi Segir Íslendinginn besta þjálfara í heimi Gullsmiður ákærður fyrir peningaþvott Umræðan Gagnsæi í verðlagningu í vinnslu og útgerð Óhagkvæm borgarlína Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Glerbrotum rigndi inn í bílinn ÁTVR í stefnumótun Fjöldi útkalla: Strætó fór út af á Holtavörðuheiði Dómur yfir Steinu staðfestur í Landsrétti Mest lesið Í gær Í vikunni Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Útskrifaður af sjúkrahúsi Fangavörður grunaður um brot í starfi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál

Share this article