Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hagsmunagæsla og bjölluat

Read Full Article →

Hrafnarnir sjá að bak við tjöldin er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í fararbroddi, komin á bólakaf í aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hvíslað hefur verið að hröfnunum að mál séu svo langt komin að Stefán Haukur Stefánsson, sendiherra í Brussel, sé nú þegar búinn að fá aðild að ESB. Verður það að teljast vel af sér vikið. Þetta sést meðal annars á því að erlendir fjölmiðlar hafa eftir embættismönnum í Brussel að þjóðaratkvæðagreiðsla um aðlögunarviðræðurnar fari fram í ágúst. Augljóst er að þær upplýsingar hafa fengist frá Íslandi. Annars sáu hrafnarnir haft eftir Þorgerði Katrínu að sérlausn fyrir Ísland vegna ETS-kerfisins yrði eitt af því sem lögð yrði áhersla á í aðlögunarviðræðum. Hrafnarnir velta fyrir sér hvort ekki væri eðlilegra ef utanríkisráðherrann legði alla áherslu, hér og nú, á að verja hagsmuni Íslands í þessum efnum í stað þess að tengja það við boðað bjölluat í Brussel. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 25. febrúar 2026.

Share this article