Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þjóðvegurinn lokaður við Hellu vegna umferðarslyss

  • What: Road closure due to traffic accident
  • Impact: Traffic disruption near Hellu
Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 25 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Þjóð­veg­ur­inn lok­að­ur við Hellu vegna um­ferð­ar­slyss Ástrós Signýjardóttir Þjóðvegurinn vestan við Hellu, við Lyngás, er lokaður vegna umferðarslyss. Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir í samtali við fréttastofu að talið sé að tveir séu slasaðir eftir árekstur tveggja bíla. Þjóðvegurinn verður lokaður þar til vinnu er lokið á vettvangi. Þjóðvegurinn vestan við Hellu, við Lyngás, er lokaður vegna umferðarslyss. Kort / Vegagerðin Fyrir 8 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Þessi fimm lík­lega í efstu sætum á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins Staðfestur framboðslisti Sjálfstæðisflokksins verður birtur á morgun. Uppstillingarnefnd flokksins hefur haldið þétt um spilin en fréttastofa spáir því að þessi fimm verði í efstu sætum á morgun. Fyrir 18 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Evrópuglugginn Sund­ur­tætt­ir lest­ar­vagn­ar á sýn­ingu í Kyiv Eftir minningaratburði og langa fundi í Kyiv á þriðjudaginn fékk Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra leiðsögn um magnaða sýningu á lestarstöðinni í Kyiv, þangað sem sundurtættir lestarvagnar hafa verið dregnir. Fyrir 19 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Starfs­fólki í sendi­ráði Banda­ríkj­anna í Ísrael hleypt heim Oddur Þórðarson Mike Huckabee, sendiherra Bandaríkjanna í Ísrael, segir starfsfólki sendiráðsins að halda heim strax í dag, ætli það sér að flýja land á annað borð. New York Times greinir frá. Í tölvupósti til starfsmanna sendiráðsins segir að viðbúnaðarstig hafi verið fært upp og nú sé því starfsfólki sem ekki er í framlínunni frjálst að fara. Þetta er gert þegar þjóðaröryggi Bandaríkjanna er ógnað eða þegar lífshætta steðjar að starfsfólki sendiráða. Hernaðarviðbúnaður Bandaríkjanna í grennd við Íran hefur margfaldast síðustu vikur og talið er að til átaka komi á næstunni. Ísrael yrði að skotmarki Írana ef svo fer að Bandaríkjaher ráðist til atlögu. Mike Huckabee, sendiherra Bandaríkjanna í Ísrael. EPA / ABIR SULTAN Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Skóla­haldi aflýst þar sem ekki tókst að tryggja öryggi Verktaki, sem ekki uppfyllti hæfnis- og gæðakröfur, fjarlægði öryggisgirðingar og innanhússlokanir í Ölduselsskóla eftir að samningi við hann var sagt upp í gær. Nýr verktaki vinnur að því í dag að tryggja öryggi á staðnum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Peningar Opnað fyrir skil á skatt­fram­tali – Ekki hægt að sækja um frest Opnað hefur verið fyrir skil á skattframtali á vefsíðu skattsins. Skilafrestur einstaklinga er til 13. mars og er ekki hægt að sækja um aukinn frest. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bretland Sigur Græn­ingja í auka­kosn­ing­um enn annað reið­ar­slag fyrir Keir Starm­er Flokkur Græningja hreppti þingsæti Verkamannaflokksins í Gorton og Denton-kjördæmi Manchester-borgar í aukakosningum í gær. Sögulegur ósigur Verkamannaflokksins er martröð fyrir Keir Starmer. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Bæj­ar­full­trú­ar H-list­ans hætta og til­laga um að bjóða ekki aftur fram Allir þrír bæjarfulltrúar H-listans, Fyrir Heimaey, hafa tilkynnt að þeir gefi ekki kost á sér til endurkjörs. Bæjarmálafélagið heldur fund í hádeginu þar sem liggur fyrir tillaga um að bjóða ekki fram aftur. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Að­al­steinn hættir að að­stoða Þor­gerði Katr­ínu Aðalsteinn Leifsson hættir störfum sem aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Hann er tilbúinn í framboð fyrir Viðreisn en uppstillingarnefnd ræður för. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Fannar skamm­að­ur fyrir að fara í fótbað á fæð­ing­ar­deild­inni Benni og Fannar fóru yfir fréttir vikunnar í Morgunútvarpinu á Rás 2 og eins og við var að búast voru málin krufin til mergjar. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Sub­terran­e­an hitar upp fyrir Mobb Deep Hin goðsagnakennda hip hop-hljómsveit sem gerði allt vitlaust á tíunda áratug síðustu aldar, kemur saman á ný eftir áratugahlé þegar þau hita upp fyrir Mobb Deep í KR-heimilinu í mars. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Umbót gengur til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn Brynjólfur Þór Guðmundsson Umbót í Reykjanesbæ sem fékk einn bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ í kosningum fyrir fjórum árum hefur ákveðið að leggja sig niður og ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Flokkarnir hafa starfað saman í minnihluta á kjörtímabilinu. Margrét Þórarinsdóttir bæjarfulltrúi gengur til liðs við Sjálfstæðisflokkinn ásamt fulltrúum Umbótar í nefndum bæjarins. Margrét var áður bæjarfulltrúi Miðflokksins. Tillaga uppstillingarnefndar Sjálfstæðisflokksins að framboðslista verður lögð fyrir fulltrúaráð flokksins í Reykjanesbæ í kvöld. Margrét Þórarinsdóttir. RÚV / Bjarni Rúnars Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tólf efstu sæti Mið­flokks­ins í Reykja­vík birt Varaborgarfulltrúi sem sagði sig nýlega úr Sjálfstæðisflokknum skipar fimmta sæti á lista Miðflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Pakistan Árásir Pakist­ans á Kabúl mikil stig­mögn­un Pakistanski herinn svaraði árásum talibana í Afganistan frá í gær með því að gera loftárásir á höfuðborgina Kabúl í nótt. Greinendur segja það mikla stigmögnun. Varnarmálaráðherra Pakistans lýsir „opnu stríði“ á hendur Afganistan. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Fleiri börnum líður vel í skóla en áskor­an­ir eru áfram til staðar Samkvæmt niðurstöðum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2025, gögnum lögreglu og barnaverndar hefur hlutfall nemenda sem segjast hafa komið með hníf í skóla lækkað úr 3% í 1% í 8. bekk milli áranna 2024 og 2025. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Nota teygj­an­leg hugtök um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu en stjórn­ar­and­stað­an vill skýr svör Forystumenn ríkisstjórnarinnar nota teygjanleg hugtök þegar þeir eru spurðir um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Tillagan á að koma „á næstu vikum“ og kjósa á um hana „á næstu“ eða „komandi“ mánuðum Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Líf og Bjarn­heið­ur efstar á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins Líf Lárusdóttir verður áfram oddviti Sjálfstæðismanna á Akranesi í næstu kosningum. Bjarnheiður Hallsdóttir kemur ný inn í annað sætið. Hún var áður formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Hag­vöxt­ur upp á 1,3 pró­sent Brynjólfur Þór Guðmundsson Hagvöxtur síðasta árs var 1,3 prósent samkvæmt bráðabirgðatölum sem Hagstofan birti í dag. Gengi hagkerfisins var þó mjög mismunandi eftir ársfjórðungum. Þannig áætlar Hagstofan að hagvöxtur hafi verið rúm þrjú prósent á fyrsta og þriðja ársfjórðungi en að um það bil hálfs prósents samdráttur hafi verið á öðrum og fjórða ársfjórðungi. Einkaneysla dreif hagvöxtinn áfram. Nafnvirði vergrar landsframleiðslu er talið hafa verið 4.956 milljarðar króna. Einkaneysla hafði mest áhrif á hagvöxt en utanríkisviðskipti höfðu neikvæð áhrif. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Sam­fylk­ing­in með 30% og Mið­flokk­ur­inn með 20% Samfylkingin og Miðflokkurinn eru tveir stærstu flokkar landsins samkvæmt nýrri skoðanakönnun Prósents. Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn mælast jafn stórir. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Milli­landa­flug á áætlun eftir röskun í gær Ástrós Signýjardóttir Millilandaflug um Keflavíkurflugvöll er á áætlun í morgun, eftir mikla röskun í gær sökum óveðurs. Beina þurfti fimmtán farþegaþotum Icelandair á varaflugvelli í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum síðdegis í gær eftir að skyndilegur stormur skall á við Keflavíkurflugvöll. Ástandið hafði áhrif á um tvö þúsund farþega. Áhafnir fjögurra véla sem lentu á Akureyrarflugvelli runnu út á tíma og urðu nýjar áhafnir að fljúga norður og svo til Keflavíkur með farþega, sem margir hverjir þurftu að bíða í vélunum í fleiri klukkustundir. Flugvélar Icelandair sem þurftu að lenda á Akureyrarflugvelli í gær vegna veðurskilyrða á Keflavíkurflugvelli. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Fá­rán­legt að tala um fá­rán­lega nálgun í ís­lensku íþrótta­starfi Sigurður Ragnar Eyjólfsson, knattspyrnuþjálfari, er ósammála prófessor í íþrótta- og heilsufræði sem segir nálgun íþróttafélaga vera fáránlega. Sigurður Ragnar vill ekki taka upp stefnu Norðmanna í íþróttaiðkun barna hér á landi. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Gerir ráð fyrir að verða vara­borg­ar­full­trúi Brynjólfur Þór Guðmundsson Friðjón R. Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gerir ráð fyrir að verða varaborgarfulltrúi á næsta kjörtímabili. Rætt hefur verið um að fæstir núverandi borgarfulltrúar fái öruggt sæti á lista. Friðjón staðfestir þetta fyrir sitt leyti í færslu á Facebook. Þar segist hann hafa viljað vera aftarlega á lista, í kringum baráttusæti. „ Það eru allar líkur á að ég verði varaborgarfulltrúi á næsta kjörtímabili og afar litlar líkur á að ég verði borgarfulltrúi, sætið mitt verður baráttusæti í umhverfi sem við höfum ekki séð enn.“ Friðjón R. Friðjónsson. RÚV Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Tveir piltar dæmdir fyrir lík­ams­árás Brynjólfur Þór Guðmundsson Tveir piltar voru í fyrradag sakfelldir fyrir sérlega hættulega líkamsárás á Akranesi 2023. Þeir voru dæmdir fyrir að veitast að pilti, henda honum í götuna og sparka ítrekað í höfuð hans og líkama þar sem hann lá á götunni. Piltarnir voru dæmdir í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Annar þeirra var að verða sextán ára og hinn á sautjánda ári þegar þeir réðust á piltinn. Dómari tók tillit til ungs aldurs piltanna við ákvörðun refsingar en einnig að árásin hefði verið skipulögð fyrir fram. Hann sagði árásina með öllu tilefnislausa, hrottafengna og unna af piltunum í sameiningu. Frá Akranesi. RUV / Einar Rafnsson Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Í dag: Ísland mætir Litáen í und­ank­eppni HM Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Litáen í undankeppni HM 2027 í dag. Leikurinn he

Share this article