Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gekk alveg skrugguvel

Read Full Article →

Systurskipin úr Eyjum, Vestmannaey VE og Bergey VE, lönduðu bæði fullfermi í heimahöfn í gærmorgun. Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey lét nokkuð vel af sér í viðtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar. „Við héldum til veiða í brælu en síðan var hið þokkalegasta veður í túrnum. Við byrjuðum á Pétursey og Vík og síðan var haldið í Meðallandsbugtina. Túrinn var síðan kláraður á Höfðanum. Meirihluti aflans var ýsa,” sagði Birgir Þór. Jón Valgeirsson á Bergey var hinn brattasti. „Þetta gekk alveg skrugguvel. Við byrjuðum á Pétursey og Vík en þar var heldur rólegt. Síðan var haldið í Meðallandsbugtina og veitt í grennd við loðnubátana. Túrinn var kláraður á Ingólfshöfðanum en þar var mjög góð veiði og á þeim slóðum var töluvert af loðnu á ferðinni. Aflinn var mest ýsa og dálítið af þorski með. Við vorum að veiðum í þokkalegasta veðri en síðan brældi,” sagði Jón. Bæði skip héldu til veiða á ný fljótlega eftir að löndun lauk.

Share this article