Samgönguráðherra segir tilboð Icelandair í Ísafjarðarflug áhyggjuefni. Félagið átti eina tilboðið í útboði Vegagerðarinnar og það var meira en tvisvar sinnum hærra en áætlaður verktakakostnaður. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair segist ekki geta skýrt muninn á tilboði Icelandair og áætluðum verkkostnaði Vegagerðarinnar þar sem hann hafi ekki innsýn í útreikninga Vegagerðarinnar. Tilboð Icelandair í Ísafjarðarflug er á við kostnað við allt annað styrkt flug á landinu, segir samgönguráðherra. Icelandair átti eina tilboðið sem var meira en tvöfalt hærra en kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar. Segir tap verða á rekstrinum miðað við áætlun Vegagerðarinnar „Við leggjum fram tilboð miðað við okkar forsendur og reynslu af rekstrinum,“ segir Bogi. Hann segir fjárfestingar þörf í þeim vélum sem fari á Ísafjörð og tilboðið taki mið af því. Þá þurfi að taka tillit til áhættu varðandi þróun á gengi og eldsneytisverði yfir fjögurra ára samningstímabilið. Í reksturinn þarf flugvélar af ákveðinni stærð. Icelandair hefur notað slíkar vélar í flugið á Ísafjörð og til Grænlands. Nú getur Icelandair flogið á stærri vélum til Grænlands. „Það væri talsvert tap af rekstrinum miðað við þetta, miðað við okkar forsendur og okkar reynslu, “ segir Bogi um áætlun Vegagerðarinnar. Hann bendir á að félagið hafi verið búið að gefa það út að flug til Ísafjarðar stæði ekki undir sér á markaðslegum forsendum og að til hefði staðið að leggja þjónustuna niður. „Við erum í rekstri og þurfum að horfa á að skapa virði fyrir okkar hluthafa,“ bætir Bogi við. Leitt að aðeins eitt tilboð barst Eyjólfur Ármannsson, samgönguráðherra, segir tilboðið ákveðið áhyggjuefni. „Þetta er langt langt yfir það sem gert var ráð fyrir. Vegagerðin gerir ráð fyrir 1,3 milljörðum, þetta eru 3,5 milljarðar sem er svipað og allt annað styrkt flug í landinu.“ Þegar Icelandair tilkynnti að félagið hygðist hætta áætlunarflugi á Ísafjörð sagði Eyjólfur að allt yrði gert til að halda því áfram. Hann segir ljóst að samkeppni skorti í geiranum. „Þetta er greinilega algjör fákeppnismarkaður og mjög leitt að það sé bara eitt tilboð. það sýnir stöðuna á flugi hér í landi,“ segir Eyjólfur. Hann segir tilboðið í skoðun hjá Vegagerðinni og í ráðuneytinu.