Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Metfjölda dæmdra útlendinga vísað úr landi

  • What: Finland deported 169 foreign nationals with criminal records
  • Impact: Policy change led to increased deportations
Read Full Article →

YLE / Retu Liikanen Finnsk stjórnvöld vísuðu 169 einstaklingum af erlendum uppruna sem hlotið höfðu dóma frá Finnlandi á síðasta ári. Þetta er mesti fjöldi dæmdra einstaklinga af erlendum uppruna sem hefur verið vísað úr landi á einu ári og aukningin var þrjátíu prósent milli ára. Meirihluti þessa hóps var karlmenn og flestir voru Írakar, Eistar og Rússar. Finnar gerðu lagabreytingar á síðasta ári sem auðveldaði yfirvöldum að vísa fólki úr landi sem hefði brotið af sér. Þá hefur eftirlit með dvalarleyfum verið hert. Finnska ríkisútvarpið YLE greinir frá.

Share this article