Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sjálfstæðismenn klofnir á Akureyri

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 28.2.2026 | 8:24 Sjálfstæðismenn klofnir á Akureyri Í bæjarráði Akureyrar sitja 11 fulltrúar og hefur Sjálfstæðisflokkurinn, með sín tvö sæti, leitt sex sæta meirihluta með L-listanum og Miðflokknum. mbl.is/Skapti Hallgrímsson Ásgeir Ingvarsson [email protected] Setja bókamerki Þórhallur Jónsson hefur sagt skilið við Sjálfstæðisflokkinn á Akureyri og mun tefla fram nýjum lista, Akureyrarlistanum, í sveitarstjórnarkosningunum í maí. Þórhallur var í þriðja sæti á lista sjálfstæðismanna árið 2018 og náði flokkurinn þá þremur mönnum inn. Árið 2022 missti flokkurinn sæti og hefur Þórhallur verið varabæjarfulltrúi á yfirstandandi kjörtímabili. Sú breyting varð nýlega hjá Sjálfstæðisflokknum að Heimir Örn Árnason steig úr oddvitasætinu og gaf Þórhallur þá kost á sér í oddvitahlutverkið á móti Berglindi Ósk Guðmundsdóttur. „Ég fór fram á að farið væri í prófkjör en ekki var orðið við því og í staðinn kaus fulltrúaráð um uppröðun á listann. Í því ráði sitja 193 manns og 120 tóku þátt og fékk Berglind 51% atkvæða, en 6 atkvæðum munaði á okkur,“ segir Þórhallur. Var honum þá boðið sæti svo neðarlega á lista að ljóst væri að Þórhallur kæmi ekki meira að störfum bæjarstjórnar. Árið 2007 lagði Ragnar Sverrisson kaupmaður drög að framboði til alþingiskosninga undir merkjum Akureyrarlista, en það verkefni raungerðist ekki. Listinn sem Þórhallur er að undirbúa er ekki tengdur þeim þreifingum. „Ég er kominn með góðan hóp fólks sem vill skipa efstu sætin, og um þessar mundir erum við að móta okkur stefnuskrá þar sem aðaláherslan verður á uppbyggingu og atvinnulífið, og að virkja tækifæri Akureyrar til vaxtar. Það var einmitt ástæðan fyrir því að ég fór út í pólitíkina að mig langaði að koma hreyfingu á hlutina, og hefur það sést á verkum mínum í skipulagsráði,“ segir Þórhallur og bætir við að flokkurinn sé þegar kominn með slagorð: Akureyrarlistinn – allt að gerast . Þórhallur Jónsson hefur sagt skilið við Sjálfstæðisflokkinn. Stefnir á tvö sæti Í bæjarráði Akureyrar sitja 11 fulltrúar og hefur Sjálfstæðisflokkurinn, með sín tvö sæti, leitt sex sæta meirihluta með L-listanum og Miðflokknum. Spurður hvort þátttaka Akureyrarlistans muni mögulega vera á kostnað Sjálfstæðisflokksins segist Þórhallur ekki líta svo á. „En það er tækifæri í pólitíska landslaginu um þessar mundir og VG og Flokkur fólksins ekki mjög sterkir. Mér sýnist vera pláss fyrir framboð Akureyrarlistans og að við ættum að geta náð inn tveimur mönnum.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Umdeild pálmaolía í Bertolli „Verður mjög fjandsamlegt umhverfi“ Miðflokkurinn býður fram í Skagafirði Ítalskt par fann friðinn á Dalvík Bandaríkin og Ísrael gera árás á Íran Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Bókaðu stund fyrir bók Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Út úr myndinni að stýrivextir lækki Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Fjöldi útkalla: Strætó fór út af á Holtavörðuheiði Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ 233 milljónir í starfslokasamninga Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Endurbæta Fífilbrekku Jónasar Seðlabankinn gerir alvarlegar athugasemdir Tók að sér að verða trúnaðarmaður og var rekin Algjört þrekvirki hjá starfsfólki Svona stillir Sjálfstæðisflokkurinn upp í Mosfellsbæ Nýrri bráðamatsdeild ætlað að dreifa álagi Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Tók að sér að verða trúnaðarmaður og var rekin 420 milljónir fyrir Toppstöðina Meginorsök banaslyss að afturhjólið læstist Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Nýjast á mbl.is » Umdeild pálmaolía í Bertolli „Verður mjög fjandsamlegt umhverfi“ Miðflokkurinn býður fram í Skagafirði Ítalskt par fann friðinn á Dalvík Bandaríkin og Ísrael gera árás á Íran Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Bókaðu stund fyrir bók Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 21 milljarðs gjaldþrot Play Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni „Fólk tjaldar inni hjá sér“ Útséð um að vaxtalækkunarferli haldi áfram Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ 233 milljónir í starfslokasamninga Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Endurbæta Fífilbrekku Jónasar Seðlabankinn gerir alvarlegar athugasemdir Tók að sér að verða trúnaðarmaður og var rekin Algjört þrekvirki hjá starfsfólki Svona stillir Sjálfstæðisflokkurinn upp í Mosfellsbæ Nýrri bráðamatsdeild ætlað að dreifa álagi Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Tók að sér að verða trúnaðarmaður og var rekin 420 milljónir fyrir Toppstöðina Meginorsök banaslyss að afturhjólið læstist Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju

Share this article