Einn maður var handtekinn í umdæmi lögreglustöðvar 2 sem sinnir verkefnum í Garðabæ og Hafnarfirði. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. Lögreglu hafði borist óljós tilkynning þar sem óskað var eftir aðstoð hennar. Á vettvangi sagði sá sem kallaði eftir aðstoð að nágranni hans hefði ýtt í hann, slegið til hans og hótað honum. Á meðan lögregla ræddi við hann kom nágranni mannsins út með hnífa í buxnastreng sínum. Hann reyndist mjög ölvaður en var ekki árásargjarn. Lögregla handtók manninn sem reyndist vera með fjölda annarra hnífa á sér. Stálu slökkvitæki af veitingastað Í miðborginni var einn handtekinn eftir að hafa kastað sér ítrekað utan í lögreglubifreiðar og verið með óspektir. Maðurinn reyndist mjög ölvaður og var vistaður í fangaklefa. Þá var einnig tilkynnt að menn hefðu stolið slökkvitæki af veitingastað og notað það utandyra. Þeir skildu það síðar meir eftir og voru farnir af vettvangi. Tilkynnt var um yfirstandandi innbrot á hjúkrunarheimili í umdæmi lögreglustöðvar 1. Það reyndist þó ekki eiga við rök að styðjast heldur var þar iðnaðarmaður að störfum utan hefðbundins vinnutíma. Einnig stöðvaði lögregla ökumann sem ók hring eftir hring í hringtorgi. Sá reyndist vímaður og var sviptur ökuréttindum og var hann einnig með fíkniefni meðferðis.