Skoðanaskipti Láru G. Sigurðardóttur læknis og Elíasar Blöndal Guðjónssonar, annars eigenda Santé, um fyrirkomulag áfengissölu hafa verið áberandi í fjölmiðlum. Þó að hrafnarnir fagni allri umræðu um þetta sjálfsagða frelsismál harma þeir að það hafi stolið sviðsljósinu af öðru þjóðþrifamáli – ágæti haframjólkur. Þannig steig næringarfræðingurinn Elísabet Reynisdóttir fram í pistli á mbl.is þar sem hún bar haframjólkinni ekki góða sögu og lýsir henni sem hálfgerðu eitri. Næringarfræðingarnir Guðrún Nanna Egilsdóttir og Vilborg Kolbrún Vilmundardóttir og læknirinn Rósa Líf Darradóttir létu ekki troða haframjólkina niður í svaðið á sinni vakt og hafna í aðsendum greinum á Vísi málflutningi Elísabetar, sem þær kalla skoðanir sem séu settar fram sem vísindi. Hrafnarnir hafa enn sem komið er ekki valið sér lið í þessari ritdeilu en bíða spenntir eftir að ljósvakamiðlar fá deiluaðila í sett til að freista þess að leiða málið í jörð. Huginn og Muninn er einn af föstu skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .