Menning | Leiklist | Sunnudagsblað | 28.2.2026 | 11:25 Fullkomin fyrsta leikhúsupplifun Hreiðrið er um samband spóafeðga og tilvalið fyrir þau allra yngstu. Ljósmynd/Eyþór Árnason Ásdís Ásgeirsdóttir Setja bókamerki Agnes Wild er höfundur og leikstjóri Hreiðursins, glænýs barnaleikrits fyrir allra yngstu börnin sem nú er sýnt á Litla sviði Þjóðleikhúsins. Leikritið er unnið í samvinnu við Leikhópinn Miðnætti og verður sýnt um helgar út apríl. Miðar fást á tix.is. Hvernig leikrit er Hreiðrið? Þetta er fullkomin fyrsta leikhúsupplifun. Verkið er í raun óhefðbundið en við erum búin að umbreyta Litla sviðinu í kósí rými, teppalagt og hlýlegt. Gestir sitja á stórum laufblöðum og eru með teppi og púða. Leikritið fjallar um spóa sem kemur heim til Íslands frá heitu löndunum. Hann gerir sér hreiður og bíður eftir að unginn hans klekist út úr egginu. Þeir lifa saman sumarið og hann kennir unganum að ganga, borða og fljúga. Um haustið fljúga þeir saman til heitu landanna. Þetta er þroskasaga um samband foreldris og barns. Börnin sitja á gólfi í kósíheitum. Fá börnin að taka þátt í verkinu? Já, börnin geta tekið þátt í því. Þau fá hljóðfæri, klúta og grjónapúða. Við erum mikið að vinna með skynjun og upplifun fyrir börnin, þau sjá liti, finna fyrir vatni og sápukúlur. Í lok sýningarinnar fá þau að koma inn á sviðið og snerta og skoða. Agnes Wild er leikstjórinn. mbl.is/Eggert Jóhannesson Fyrir hvaða aldur er þetta hugsað? Sýningin er sérstaklega búin til fyrir þriggja mánaða til þriggja ára. En eldri börn eru auðvitað velkomin í Hreiðrið, það er svo gaman að sjá þegar eldri systkini koma með því þau fyllast oft stolti og gleði að fá að koma með litla systkinið sitt í leikhús. Sýningin er 45 mínútur en í lokin er 15-20 mínútna leikstund. Sjálf á ég einn lítinn fimmtán mánaða dreng sem ég prófaði sýninguna á og honum fannst hún æðisleg. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Skemmtileg nánd við blómin Trump um De Niro: „Sjúkur og siðspilltur“ Hann er kjölturakki konungsins Vefarinn mikli frá Kópavogi „Ég spyr bara Guð“ Reykjavíkurmorðin hefjast 2027 Lést af völdum slysaskots „Má líta á mig sem ofurhóru“ Bókamarkaðurinn blómstrar á nýjum stað Hljómsveitin 10cc á leið til Íslands Trump um De Niro: „Sjúkur og siðspilltur“ „Ég spyr bara Guð“ Hann er kjölturakki konungsins Reykjavíkurmorðin hefjast 2027 Hljómsveitin 10cc á leið til Íslands Bralla ýmislegt hæfilega kærulaus Eldarnir framlag Íslands Vefarinn mikli frá Kópavogi Lést af völdum slysaskots Óttinn áþreifanlegur í Röskun Lést af völdum slysaskots Andlát: Haraldur Sigurðsson Gengur morðingi laus? Trump um De Niro: „Sjúkur og siðspilltur“ „Má líta á mig sem ofurhóru“ Þýskur ráðherra gekk út í fússi Valdasjúkur eins og Trump Samfélagið hrynur til grunna Í BDSM-sambandi við Heathcliff Hljómsveitin 10cc á leið til Íslands Áhugaverð viðtöl Menning Fljótið brúnt allan ársins hring Menning Hvöt og nauðsyn sem yfirtekur allt Menning Varð óvart að söngleik Menning Í fyrsta sinn í eigin nafni Menning Óttaðist að missa barnið sitt Mest lesið Í gær Í vikunni Skemmtileg nánd við blómin Trump um De Niro: „Sjúkur og siðspilltur“ Hann er kjölturakki konungsins Vefarinn mikli frá Kópavogi „Ég spyr bara Guð“ Reykjavíkurmorðin hefjast 2027 Lést af völdum slysaskots „Má líta á mig sem ofurhóru“ Bókamarkaðurinn blómstrar á nýjum stað Hljómsveitin 10cc á leið til Íslands Trump um De Niro: „Sjúkur og siðspilltur“ „Ég spyr bara Guð“ Hann er kjölturakki konungsins Reykjavíkurmorðin hefjast 2027 Hljómsveitin 10cc á leið til Íslands Bralla ýmislegt hæfilega kærulaus Eldarnir framlag Íslands Vefarinn mikli frá Kópavogi Lést af völdum slysaskots Óttinn áþreifanlegur í Röskun Lést af völdum slysaskots Andlát: Haraldur Sigurðsson Gengur morðingi laus? Trump um De Niro: „Sjúkur og siðspilltur“ „Má líta á mig sem ofurhóru“ Þýskur ráðherra gekk út í fússi Valdasjúkur eins og Trump Samfélagið hrynur til grunna Í BDSM-sambandi við Heathcliff Hljómsveitin 10cc á leið til Íslands Áhugaverð viðtöl Menning Varð óvart að söngleik Menning Að horfast í augu við sjálfan sig Menning Stanslaus lýsing við Grensásveg Menning Skaut af sér handlegginn Menning Hrá, hörð og kraftmikil Carmen