- What: Strætó receives 72 million ISK in compensation from workers
- Impact: Workers of Strætó are required to repay 75% of government support received for purchasing eco-friendly buses
Innlent | Morgunblaðið | 28.2.2026 | 13:14 Strætó ver endurgjaldið Verktakar sjá um 60% af akstri Strætó bs. á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Framkvæmdastjóri Strætó bs. sér ekkert athugavert við að krefja verktaka fyrirtækisins um að fá megnið af ríkisstyrkjum vegna kaupa þeirra á „hreinorkustrætisvögnum“ og telur það fullkomlega löglegt. Strætó hefur nú þegar móttekið 72 milljónir króna í endurgjald frá verktökum, sem fyrirtækið samdi við um akstur. Eins og sagt var frá í frétt í blaðinu í gær setti Strætó, byggðasamlag sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, það sem skilyrði í útboði á akstri fyrir sig að ef verktakafyrirtækin fengju styrki úr Loftslags- og orkusjóði vegna kaupa á slíkum vögnum, þá þyrftu þau að borga Strætó 75% af styrknum. Styrkirnir nema 33% af heildarkaupverði vagnanna og eru hugsaðir til þess að greiða fyrir orkuskiptum í almenningssamgöngum með niðurgreiðslu á fjárfestingu í „hreinorkustrætisvögnum“. Ástæðan sögð óvissa um styrki Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó bs., segir ástæðuna þá að þegar Strætó hafi ráðgert útboð á akstri árið 2023 hafi ekki legið fyrir hvort stjórnvöld myndu styrkja kaup á hreinorkuvögnum eða í hvaða mæli ef af yrði, þó slík áform hafi komið til umræðu. Tilboð hafi því miðast við fullt verð vagnanna. Af þeim sökum hafi Strætó bs. ákveðið að setja inn þetta ákvæði í útboðslýsinguna, þannig að ef til styrkveitinga kæmi yrði styrknum skipt milli verkkaupa og verktaka í þessum hlutföllum, þar sem Strætó fengi 75% en verktakarnir héldu 25% af styrk sínum frá ríkinu. „Þetta var gert í samráði við stjórn Strætó,“ staðfestir Jóhannes Svavar í svari til Morgunblaðsins. „Hafa þarf í huga að [tilboðsverð] til Strætó er miðað við heildarverð vagns án nokkurs styrks og því eðlilegt og löglegt að Strætó nyti hluta styrksins og ætti örugglega að njóta stærra hlutfalls,“ bætir hann við. „Við teljum þetta fullkomlega löglegt enda var þetta kynnt öllum bjóðendum bæði í gögnum og á kynningarfundi og engar athugasemdir komu fram.“ Hins vegar fengust ekki svör við því hvort þessi háttur hefði verið á fleiri útboðum Strætó eða hvort leitað hefði verið lögfræðiálits á því. Þótti eðlilegt Jóhannes Svavar segir að öllum hlutaðeigendum hafi þótt þetta fyrirkomulag eðlilegt. Blaðið hefur rætt við verktaka í greininni, en þeir eru ekki á sama máli og benda á að tilbjóðendur hafi ekki verið í góðri stöðu til þess að andæfa þessu skilyrði. Þeir vilja hins vegar ekki koma fram undir nafni. Jóhannes Svavar segir að þegar stjórnvöld hafi tekið ákvörðun um að styrkja orkuskipti í almenningssamgöngum með þessum hætti hafi átt sér stað „þétt samtal við umhverfisráðuneytið og forsvarsmenn Orkusjóðs um þetta ákvæði“ og úthlutunarreglur hafi miðast við það. „Við teljum að þetta sé allt löglegt enda málið allt unnið með þar til bærum stjórnvöldum og allt upp á borðinu og við teljum að ekki verði neinar kröfur um endurgreiðslu.“ Fundur var haldinn í stjórn Orkusjóðs í gær, en eftir því sem blaðið kemst næst verður boðað til aukafundar stjórnarinnar í næstu viku, þar sem þetta mál verður til umfjöllunar. Morgunblaðið hefur óskað svara um málið frá Orkusjóði, sem rekinn undir handarjaðri Umhverfis- og orkustofnunar, en svör hafa ekki borist. Jóhannes Svavar Rúnarsson Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Strætó ver endurgjaldið Sagði ótrúlega sögu af Jamie Vardy Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ Búið að opna fyrir skattframtalið Leikmaður mánaðarins án þess að byrja leik Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Bókaðu stund fyrir bók Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aðsetur æðstaklerksins jafnað við jörðu „Þetta er grafalvarleg staða“ Ísrael gerir loftárásir á Íran 21 milljarðs gjaldþrot Play Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Umdeild pálmaolía í Bertolli „Þetta er grafalvarleg staða“ 233 milljónir í starfslokasamninga Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga 14 gefa kost á sér í Eyjum Endurbæta Fífilbrekku Jónasar Sjálfstæðismenn klofnir á Akureyri Miðflokkurinn býður fram í Skagafirði Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Tók að sér að verða trúnaðarmaður og var rekin 420 milljónir fyrir Toppstöðina Meginorsök banaslyss að afturhjólið læstist Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Nýjast á mbl.is » Strætó ver endurgjaldið Sagði ótrúlega sögu af Jamie Vardy Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ Búið að opna fyrir skattframtalið Leikmaður mánaðarins án þess að byrja leik Umræðan Vinna, vöxtur, velferð Bókaðu stund fyrir bók Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bandaríkin og Ísrael gera árás á Íran Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Meginorsök banaslyss að afturhjólið læstist Nýr verktaki fenginn varðandi Ölduselsskóla Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Umdeild pálmaolía í Bertolli „Þetta er grafalvarleg staða“ 233 milljónir í starfslokasamninga Íslendingar beðnir um að láta vita af sér Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga 14 gefa kost á sér í Eyjum Endurbæta Fífilbrekku Jónasar Sjálfstæðismenn klofnir á Akureyri Miðflokkurinn býður fram í Skagafirði Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Tók að sér að verða trúnaðarmaður og var rekin 420 milljónir fyrir Toppstöðina Meginorsök banaslyss að afturhjólið læstist Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju