Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hægur vindur víða í dag en hvessir hressilega á Austurlandi á morgun

  • What: Weather forecast for Iceland
  • Impact: Potential snow and wind in certain areas
Read Full Article →

Norðlæg átt verður á landinu í dag. Kaldi eða strekkingur við suður- og austurströndina en annars fremur hægur vindur. Búast má við snjókomu með köflum austanlands og dálítil él norðantil. Frost verður á bilinu 0 til 10 stig. Á morgun hvessir á austurhelmingi landsins. Þá gengur í norðvestan hvassviðri storm á þeim slóðum. Auk þess má búast við hríðarveðri á norðaustanverðu landinu. Því má gera ráð fyrir að ekkert ferðaveður verði austantil á landinu á morgun. Seinnipartinn á svo eftir að hvessa enn frekar á Austurlandi og Austfjörðum. Fólk er hvatt til að huga að lausamunum. Mun hægari vindur verður á vesturlandi og áfram svalt. Snjór í Mjóafirði. Búast má við hríðarviðri á Austurlandi á morgun.Margrét Sigfúsdóttir

Share this article