- What: Icelandic youth group meets the Pope
- Impact: Religious group from Iceland visited Rome
Systir María De Pentecostés, nunna argentínsku kvenreglunnar Þernur Drottins og Maríu meyjar frá Matará, sem ferðaðist á dögunum með hópi 14 ára unglinga til Ítalíu í tilefni af fermingu þeirra í fyrra. Alls voru 10 unglingar með í för, þrjár nunnur og einn prestur. Í Anna Gyða Sigurgísladóttir ræddi við systur Pentecostés í hlaðvarpsþættinum Meiningu. Fermingarbörn úr kaþólskri sókn St. Jósefskirkju í Hafnarfirði eru nýkomin heim úr pílagrímsferð til Ítalíu þar sem þau vitjuðu helgs dóms Carlos Acutis — fyrsta dýrlings þúsaldarkynslóðarinnar — og komust í snertingu við páfann. „Við fórum til Rómar að skoða ýmsar kirkjur, við fórum líka í katakombur þar sem kristnir menn voru grafnir og vorum með messu þar,“ segir systir Pentecostés. Hún útskýrir að hægt sé að panta tíma í katakombunum fyrir messu. Altarið sé undirbúið fyrir hópa en þau mæti með eigin prest og sálmabækur. „Við vorum meira að segja með bækur á íslensku.“ Að sjálfsögðu gerði hópurinn sér einnig ferð í Vatíkanið, þar sem Leó XIV páfi tók á móti hópnum ásamt öðrum pílagrímum. „Það gerist alltaf á hverjum miðvikudegi að páfinn er með fyrirlestur, og fólk kemur alls staðar frá til að vera viðstatt,“ segir systir Pentecostés. „Margir krakkanna náðu að snerta páfann, og þeir voru svo ánægðir.“ Hópurinn gaf ritara páfanns bol, merktan söfnuðinum. Systirin segist ekki vita hvað páfinn mun gera við bolinn en vonast til að hann að hann sé frá Íslandi. Hann hafi sjálfur minnst á Ísland í ræðu sinni og heilsað þannig hópnum. Sáu fyrsta þúsaldardýrlinginn Hópurinn fór jafnframt sérstaklega til bæjarins Assisi, á slóðir heilags Frans en þar eru líkamsleifar þúsaldardýrlingsins Carlo Acutis sem oft er kallaður „áhrifavaldur guðs“ (e. God’s influencer). Líf Carlos Acutis var stutt. Hann fæddist 1991 en 15 ára gamall greindist hann með hvítblæði og dó skömmu síðar. Acutis var ekki prestur eða eða munkur eins og flestir dýrlingar heldur venjulegur, en óvenju trúrækinn, unglingur, sem forritaði gagnabanka yfir kraftaverk um allan heim. Þó hann hafi dáið fyrir tuttugu árum, fyrir drottnunartíma snjallsíma og samfélagsmiðla þá var Acutis hugfanginn af því að tjá sig í gegnum vídeó og myndir. Carlo Acutis talar þannig inn í veruleika ungs fólks, Líkami Acutis var grafinn upp 2019, þegar ljóst var að hann yrði tekinn í dýrlingatölu, svo fólk gæti barið hann augum. Ástand líkamsleyfana var eðlilegt miðað við þann tíma sem liðið hafði frá andlátinu, og þegar búið var um líkama hans voru því notaðar ákveðnar varðveisluaðferðir eins og sílikongríma og andlitsendurbygging. Það sem fermingarbörnin sáu í grafhvelfingunni var því vandlega unnin sílikonendurgerð sem sýnir Acutis eins og hann leit út í lifandi lífi. Undir niðri er raunveruleg beinagrind hans og hluti af líkamanum. Systir Pentecostés segir heimsóknina í grafhvelfinguna hafa verið áhrifamikla fyrir unglingana, sem séu enn áhugasamari um trúna eftir ferðalagið. „Þau taka þetta mjög persónulega, af því að þetta er strákur eins og þau.“ Drengirnir sannfærðir en foreldrarnir ekki Systir Pentecostés segir að í kirkjuna sæki ekki bara börn sem hafi alist upp í kaþólskri trú. Nokkrir 14 til 15 ára drengir utan kirkjunnar taki reglulega þátt í starfi hennar, með það fyrir augum að verða kaþólikkar. „Þeir eru að leita, óska einhvers meir. Þeir finna þetta ekki í öðrum hlutum. Þeir hlusta sjálfir á mörg podköst um trú og eru sjálfir að læra,“ segir hún. Hún segir foreldra mismóttækilega fyrir þessum óskum drengjana. Sumir vilji ekki að þeir fermist inn í kaþólska trú en kirkjan geri sér ekki sérstakt far um að sannfæra foreldra um slíkt. „Ekki svo mikið. Við erum bara að bíða.“