Veðurstofan hefur gefið út gula og appelsínugula viðvörun vegna óðveðurs á austurhelmingi landsins á morgun. Fyrsta gula viðvörunin tekur gildi á Norðurlandi eystra, Austurlandi og Austfjörðum klukkan níu í fyrramálið. Síðar taka gular viðvaranir gildi á Suðausturlandi og Miðhálendinu. Appelsínugul viðvörun tekur gildi á Austurlandi og Austfjörðum klukkan 13 á morgun vegna norðvestan stórhríðar. Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við því að færð spillist eftir hádegi á morgun, líklega á fjallvegum, t.d. Möðrudalsöræfum, Fagradal og Fjarðarheiði. Einnig er spáð snörpum vindhviðum við fjöll, yfir 35 m/s, austur af Öræfum og á sunnanverðum Austfjörðum á sama tíma. Ekki dregur úr vindi og ofankomu fyrr en seint annað kvöld.