Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

31 látinn og um 150 særðir eftir miklar árásir á Líbanon

This article describes geopolitical military attacks and retaliatory strikes between state and non-state actors, not a technical software vulnerability. Therefore, no technical details such as attack vectors, CVSS scores, affected software versions, patches, or workarounds are applicable or provided.
Read Full Article →

Að minnsta kosti 31 er látinn og um 150 eru særðir eftir miklar árásir ísraelska hersins á Líbanon í nótt. Hundruð þúsunda Líbana eru á flótta eftir að ísraelski herinn fyrirskipaði íbúum í 50 bæjum og borgum í Suður- og Austur-Líbanon að yfirgefa heimili sín og í kjölfarið myndaðist örtröð víða á vegum landsins. Stjórnvöld í Ísrael segja árásirnar vera á skotmörk Hezbollah-hreyfingarinnar. Árásirnar koma í kjölfar árása Hezbollah-hreyfingarinnar á Ísrael fyrr í nótt, sem hreyfingin segir vera hefndaraðgerðir fyrir dauða æðsta klerks Írans, Ali Khamenei. Nawaf Salam, forsætisráðherra Líbanon, hefur sagt árásir Hezbollah ábyrgðarlausar og þær ógni öryggi Líbanon og gefi Ísrael tilefni til að halda áfram árásum sínum á landið. Forsætisráðherrann sagði í færslu á samfélagsmiðlinum X að hann vildi ekki að landi drægist inn í átökin – og stjórnvöld myndu grípa til nauðsynlegra ráðstafana til að handtaka gerendurna og tryggja öryggi íbúa. Þá hafa sömuleiðis verið miklar árásir á Tehran í nótt og að minnsta kosti 20 manns féllu í árás á tog í Tehran. Greint hefur verið frá árásum í Abu Dhabi, Bahrein, Doha og Írak og þá sást reykur sést stíga upp nærri bandaríska sendiráðinu í Kúveit.

Share this article