Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 2.3.2026 | 11:15 Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Tölvuteikning af smáhýsum og þjónustuhúsi fyrir ferðamenn við Gauksstaði í Garði. Samþykkt sveitarfélagsins var felld úr gildi á föstudag. Flóki Larsen [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ferðamenn á Íslandi Kínverskir ferðamenn sagðir erfiðastir á Íslandi Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Gjaldskyldan eldfimt umræðuefni Vísbendingar um gerviverktöku í ferðaþjónustu Nýtt hótel á að skapa „varanleg verðmæti“ » Fleiri tengdar fréttir Ábúendum á Gauksstöðum í Garði er ekki heimilt að byggja gistiaðstöðu fyrir ferðamenn eins og sveitarfélagið hafði áður samþykkt í deiliskipulagi. Eigendur að minnsta kosti sjö nærliggjandi lóða kærðu samþykkt deiliskipulagsins og höfðu ýmislegt út á áformin að setja. Fyrirhugað var að reisa 15 smáhýsi með gistiaðstöðu fyrir allt að 50 manns. Þar að auki átti að reisa þjónustubyggingu að hámarki 300 fm. Þetta kemur fram hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. „Þetta er bara hluti af ferlinu. Við erum ekkert af baki dottnir,“ segir Jón Steinar Konráðsson við Morgunblaðið en hann er meðal þeirra sem standa að framkvæmdinni og ætlar að auglýsa áformin í skipulagsgátt á ný. Áttu að auglýsa aftur Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að kærendur ættu lögvarða hagsmuni í málinu. Hins vegar snerist úrskurðurinn í meginatriðum ekki um athugasemdir nágrannanna um hættu á sjávarflóðum, umferðarrétt um veginn að Gauksstöðum eða skerðingu á útsýni til sjávar. Meginástæða ógildingarinnar var að kærendunum gafst ekki færi á að koma með athugasemdir við áætlanirnar öðru sinni. Nær hefði verið að auglýsa eftir athugasemdum að nýju, þar sem tillagan hefði tekið breytingum sem segir þó í úrskurðinum að séu óverulegar. Meðal breytinga frá upprunalegu tillögunni sögðu kærendur að væru ákvæði um öryggisleið með fram sjóvarnargarði, tilfærsla á byggingarreit þjónustubyggingarinnar og á bílastæði. Í úrskurðinum er það einnig gagnrýnt að umhverfismat hafi ekki verið fullnægjandi í upprunalegri tillögu að deiliskipulagi og ekki sé hægt að bæta við umhverfismati án þess að auglýsa eftir athugasemdum að nýju. „Vegurinn að Gauksstöðum er bara gamall sveitavegur. Það er ekki gert ráð fyrir neinni umferð hérna,“ segir Freyr Gunnarsson en hann býr við veginn sem liggur að Gauksstöðum. Hann er einn af þeim sem kærðu áformin um uppbygginguna. Freyr segist vera ánægður með úrskurðinn sem sé sigur fyrir þær tíu fjölskyldur sem komu að kærunni. Freyr gagnrýnir skort á samráði frá sveitarfélaginu sem hafi ekki ráðfært sig við nálæga ábúendur sem búa í 100 til 200 metra fjarlægð frá framkvæmdasvæðinu. Skipulagsfulltrúi Suðurnesjabæjar segir hann ekki hafa tekið mið af athugasemdum fjölskyldnanna. Freyr fagnar úrskurðinum, þar sem kæran hafi skilað tilætluðum árangri við að stöðva framkvæmdirnar. Framkvæmdaaðilinn, áðurnefndur Jón Steinar, segist einnig fagna úrskurðinum. „Við erum ánægðir með niðurstöður nefndarinnar sem snúa að ákæruliðum kærenda sem var öllum hafnað. Þess vegna er ljóst að deiliskipulagið, sem var staðfest af Skipulagsstofnun, er í takt við gildandi aðalskipulag sveitarfélagsins og niðurstaða nefndarinnar undirstrikar að deiliskipulagið sjálft er gott og gilt,“ segir hann. Jón segir að niðurstaðan hægi á ferlinu en eyði um leið allri óvissu hvað varðar lögmæti skipulagsins. „Við höfum ekki mikla reynslu í skipulagsmálum og höfum því treyst á sveitarfélagið sem ber leiðbeiningarskyldu í málum sem þessum. Það er súrt að þurfa að seinka ferlinu vegna tæknilegra mistaka sem gerð voru á fyrri stigum málsins en það þýðir þó lítið að dvelja við það. Við höldum áfram þeirri undirbúningsvinnu sem við höfum verið í og hlökkum til þess að opna glæsilega ferðaþjónustu vorið 2027.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ferðamenn á Íslandi Kínverskir ferðamenn sagðir erfiðastir á Íslandi Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Gjaldskyldan eldfimt umræðuefni Vísbendingar um gerviverktöku í ferðaþjónustu Nýtt hótel á að skapa „varanleg verðmæti“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Sögulega lélegt hjá danska stórliðinu Alþjóðaflugvöllur á Kýpur rýmdur Vilja byggja ofan á Valhöll og breyta í hótel Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Haaland í sérflokki þegar kemur að launatölum Umræðan „Planið er að virka“ Verðmætasköpunin er í Fjarðabyggð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Drónaskynjarar orðnir algengir Alþjóðalög „ekki efst á blaði“ Bandaríkjamanna „Heimili okkar á að vera griðastaður“ Ófært víða á Austurlandi og skólahaldi aflýst Mest lesið Í gær Í vikunni Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá „Heimili okkar á að vera griðastaður“ Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Óveður á austurhelmingi landsins Norðvestan stórhríð með vindhviðum yfir 45 m/s Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ Margir vegir lokaðir fyrir austan „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Skipti um kyn í miðju matarboði Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Vara við stórhríð á morgun Appelsínugul viðvörun gefin út Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Sögulega lélegt hjá danska stórliðinu Alþjóðaflugvöllur á Kýpur rýmdur Vilja byggja ofan á Valhöll og breyta í hótel Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Haaland í sérflokki þegar kemur að launatölum Umræðan „Planið er að virka“ Verðmætasköpunin er í Fjarðabyggð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Heimili okkar á að vera griðastaður“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Ófært víða á Austurlandi og skólahaldi aflýst Myndskeið: Íranar fagna falli Khameneis Mest lesið Í gær Í vikunni Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá „Heimili okkar á að vera griðastaður“ Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Óveður á austurhelmingi landsins Norðvestan stórhríð með vindhviðum yfir 45 m/s Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ Margir vegir lokaðir fyrir austan „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Skipti um kyn í miðju matarboði Myndir: Sandurinn við Reynisfjöru gengur til baka Vara við stórhríð á morgun Appelsínugul viðvörun gefin út Gauti kostaði ríkið hátt í 180 milljónir í fyrra Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“

Share this article