Security News

Cybersecurity news aggregator

⚔️
HIGH Attacks Viðskiptablaðið

Mynd­band: Bandarísk herþota felld í Kúveit

This article describes a kinetic military incident, not a software vulnerability or cyber threat. It reports that at least one U.S. military aircraft was shot down in Kuwait amid escalating regional conflict. The article does not contain any information pertaining to a CVSS score, affected software versions, patches, or technical workarounds.
Read Full Article →

Að minnsta kosti ein bandarísk her­flug­vél var felld í Kúveit í dag, að sögn em­bættis­manns hjá bandarísku her­stjórninni CENTCOM en The Wall Street Journal greinir frá. Áhöfn vélarinnar kastaði sér út og er sögð heil á húfi. Ríkismiðill Kúveit greinir frá því, með vísan í varnar­málaráðu­neyti landsins, að nokkrar bandarískar herþotur hefðu verið felldar. Ríkismiðill Kúveit greinir frá því, með vísan í varnar­málaráðu­neyti landsins, að nokkrar bandarískar herþotur hefðu verið felldar. Orsök at­viksins, sem sjá má á myndbandi hér að neðan, er til rannsóknar. Átök hörðnuðu um helgina At­vikið í Kúveit kemur í kjölfar þess að átök í Miðaustur­löndum færðust í aukana um helgina. Ís­raels­her gerði árásir á skot­mörk Hez­bollah í Líbanon í kjölfar árásar sam­takanna, sem njóta stuðnings Írans, og víkkaði þar með átökin á svæðinu. Bandaríski og ís­raelski herinn héldu áfram árásum á skot­mörk í Íran og hafa að eigin sögn gert árásir á um 2.000 skot­mörk frá því að að­gerðir hófust. Íran svaraði með nýjum árásum á Ís­rael og önnur skot­mörk í Persaflóaríkjum. Að sögn CENTCOM féllu þrír bandarískir her­menn og fimm slösuðust al­var­lega. Donald Trump for­seti varaði við því að lík­legt væri að fleiri myndu láta lífið í að­gerðum Bandaríkjanna. Á sama tíma hækkaði olíu­verð og gas­verð í Evrópu og vísitölu­fram­virkir samningar á hluta­bréfa­mörkuðum lækkuðu vegna áhyggja af efna­hags­legum áhrifum átakanna. Sjá einnig Af hverju skiptir Hor­mússundið svona miklu máli?

Share this article