Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Dýpkun Landeyjahafnar tefst vegna bilunar

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 7 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Dýpkun Land­eyja­hafn­ar tefst vegna bil­un­ar Andri Yrkill Valsson Herjólfur siglir til og frá Þorlákshöfn áfram næstu vikur. Bilun í dýpkunarskipi, sem unnið hefur að dýpkun Landeyjahafnar, gerir það að verkum að stöðva þarf þær framkvæmdir. Í tilkynningu Vegagerðarinnar segir að unnið sé að því að fá varahluti erlendis frá og áætlað að viðgerð taki um 10-20 daga. Á meðan er ekki hægt að vinna að dýpkun Landeyjahafnar. Þar til annað verður tilkynnt, siglir Herjólfur um Þorlákshöfn. Herjólfur siglir til og frá Þorlákshöfn á næstunni. Vegagerðin Fyrir 57 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Austurland Björg­un­ar­sveit­ir kall­að­ar út vegna óveð­urs­ins Björgunarsveitir á Austurlandi hafa verið kallaðar út vegna stórhríðar og slæms færis í landshlutanum. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Axel O sendir frá sér Texas Town Texas Town með Axel O kom út í fyrra. Hún er önnur breiðskífa hans og afrakstur þriggja ára vinnu í hljóðverum í Texas og á Íslandi. Hún er óður til Texas og þess mikla sambands sem Axel hefur átt við ríkið í gegnum áratugina. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Ákærð­ur fyrir ít­rek­að­ar nauðg­an­ir og frels­is­svipt­ing­ar Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir að nauðga konu fimm sinnum og svipta hana frelsi sínu í þrjú þeirra skipta. Brotin sem maðurinn er ákærður fyrir voru framin fyrir fjórum árum samkvæmt ákæru. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stríð í Miðausturlöndum Ol­íu­verð gæti hækkað veru­lega vegna átak­anna Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir enn of snemmt að segja til um hver efnahagsleg áhrif stríðsins í Miðausturlöndum verða. Olíuverð gæti hækkað verulega og vöruflutningar raskast. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Leik­dag­ur: Á bratt­ann að sækja í Litáen Ísland mætir nú Litáen í undankeppni HM 2027 í körfubolta. Ísland vann ótrúlegan endurkomusigur í fyrri leik liðanna á föstudaginn. Litáar eru því í hefndarhug. Leikurinn hófst klukkan 16:30 og er sýndur á RÚV. Leikurinn var jafn í upphafi leiks en Litáar náðu tíu stiga forskoti í fyrsta leikhluta. Ísland kemst áfram í næsta hluta undankeppninnar með sigri en verður einnig að treysta á að Ítalir vinni Breta. Sá leikur fer fram seinna í dag. Hér fylgjumst við með öllu því helsta á lifandi leikdagsvakt. Hér má sjá helstu tilþrif, tölfræði og viðtöl auk gang leiksins. FRÉTTAVAKT Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Bróðir Mar­grét­ar Löf: „Ekki senda fólk heim til kval­ara síns“ Bróðir Margrétar Löf telur að koma hefði mátt í veg fyrir að Margrét banaði föður þeirra, Hans Löf, í fyrra. Hann lýsir deginum þegar Margrét var handtekin og upplifun sinni af málinu. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hríð­ar­veð­ur á suð­vest­ur­horn­inu í fyrra­mál­ið Brynjólfur Þór Guðmundsson Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna hríðarveðurs á Suðurlandi og við Faxaflóa frá klukkan níu í fyrramálið til eitt eftir hádegi. Hvöss suðaustanátt með snjókomu og skafrenningi verður þá ríkjandi. Lítið skyggni verður á köflum, einkum á Hellisheiði, í Þrengslum, á Kjalarnesi og Snæfellsnesi. Hætt er við að samgöngur fari úr skorðum. Vindhviður geta farið í kringum 30 metra á sekúndu við fjöll við Faxaflóa. Gular viðvaranir morgundagsins. Veðurstofa Íslands Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stríð í Miðausturlöndum Óvíst hversu margir flug­far­þeg­ar hafa orðið fyrir áhrif­um Starfsmenn Úrvals Útsýnar aðstoðuðu viðskiptavini um helgina vegna ferðalaga til og frá Mið-Austurlöndum. Forstjórinn segir ekki hafa þurft að fella niður pakkaferðir. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Betri sveit kynnir fram­boðs­lista Nýtt framboð sem sprettur upp úr hópi sumarhúsaeigenda í Grímsnes- og Grafningshreppi hefur kynnt framboðslista sinn. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hafnarfjörður Eldur í iðn­að­ar­hús­næði í Hafn­ar­firði Eldur kviknaði á neðri hæð iðnaðarhúsnæðis við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði á öðrum tímanum í dag. Slökkvistarf gengur vel og slökkvilið hefur náð yfirhöndinni, að sögn varðstjóra. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður „Get þá í versta falli skrið­ið heim“ Bálhvasst er orðið sums staðar á Austfjörðum og bylur er á Borgarfirði eystra. Appelsínugular viðvaranir tóku gildi klukkan eitt á Austurlandi og Austfjörðum. Sveitarstjórinn í Múlaþingi bjó sig undir veðrið og er með kuldagallann í bílnum. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Þórey Anna ólétt og dregur sig úr lands­lið­inu Einar Örn Jónsson Þórey Anna Ásgeirsdóttir hefur dregið sig út úr landsliðshópi kvennalandsliðsins í handbolta fyrir komandi leiki gegn Svartfjallalandi í undankeppni EM 2026. Þórey Anna er ólétt og leikur ekki handbolta meira á næstunni. Sonja Lind Sigsteinsdóttir, leikmaður Hauka, kemur í hennar stað. Þórey Anna varð bikarmeistari með Val á laugardag og það var lokaleikur hennar í bili. Hún á 55 A-landsleiki að baki og mörkin eru 90. Ísland mætir Svartfjallalandi á Ásvöllum á miðvikudag og svo ytra á sunnudag. Fyrri leikurinn er sýndur beint á RÚV 2 og sá síðari á RÚV. Ísland er neðst í undanriðlinum og mætir Færeyjum og Portúgal í lokaleikjunum í apríl. Þórey Anna Ásgeirsdóttir Imago Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Grænland Ætla að senda sjúkra­skip­ið þrátt fyrir and­mæli Bandaríkin eru staðráðin í að senda sjúkraskip til Grænlands þrátt fyrir að dönsk og grænlensk stjórnvöld hafa afþakkað heilbrigðisaðstoð. Sérfræðingar telja að skipið myndi skapa fleiri vandamál en það myndi leysa. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Miðausturlöndum Ís­lend­ing­ur í Barein: „Þetta er bara skelfi­legt“ Íslensk kona sem býr í Barein segir ástandið þar undanfarna sólarhringa skelfilegt. Íranir hafi ráðist á flotastöð sem er í hálftíma fjarlægð frá henni og búið sé að loka flugvellinum. Sírenuvæl sé á tveggja tíma fresti og haldi fyrir þeim vöku. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Lögðu hald á 5.000 glös með ólög­leg­um pept­íð­um á Ís­landi Íslensk yfirvöld hafa lagt hald á um 5.000 glös með ólöglegum peptíðum. Allt efnið kom hingað með póst- og hraðsendingum frá Kína. 30 ríki tóku þátt í sameiginlegum aðgerðum gegn viðskiptum og innflutningi á ólöglegum lyfjum. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Mikill varn­ar­leik­ur en okkur finnst það skemmti­legt Kvennalandslið Íslands í fótbolta fær vægast sagt vegleg verkefni í fyrstu tveimur leikjunum í undankeppni HM 2027. Ísland mætir heimsmeisturunum á morgun og svo Evrópumeisturunum á laugardag. Sveindís Jane Jónsdóttir óttast ekki andstæðingana. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Minn­ast Davíðs Odds­son­ar: „Einn áhrifa­mesti stjórn­mála­mað­ur í sögu lýð­veld­is­ins“ Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra, lést á heimili sínu í gær 78 ára að aldri. Samferðafólk Davíðs minnist hans sem áhrifamikils stjórnmálamanns og sterks leiðtoga. FRÉTTAVAKT Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag „Það er í tísku að vera að svelta sig, hjá stúlk­um“ Samfélagsmiðlar, athugasemdir um líkamsþyngd og ofuráhersla á útlit hefur ýtt undir mikla fjölgun átröskunartilfella undanfarið hjá ungum stúlkum, að mati næringarfræðings. Hún segir þróunina vera ógnvænlega. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Margir vegir lok­að­ir vegna hríð­ar­veð­urs Vegir víða á Austurlandi og Norðausturlandi hafa lokast vegna hríðarveðurs sem gengið er inn yfir austanvert landið. Veðrið á enn eftir að versna austast. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti „Þetta gerist ekki mikið stærra“ Nýliðinn Birta Georgsdóttir er klár í slaginn gegn Spánverjum. Íslenska landsliðið í fótbolta mætir þessu besta liði heims í fyrsta leik sínum í undankeppni HM 2027. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Miðausturlöndum Heg­seth: „Þetta er ekki Írak, þetta er ekki enda­laust“ Átökin í Miðausturlöndum hafa breiðst enn frekar út. Rauði hálfmáninn segir að 550 hafi verið drepnir í Íran síðan árásir hófust. Íranski herinn gerði í morgun árásir vítt og breitt um heimshlutann, meðal annars á skrifstofur Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Ísraelsher hefur gert þungar árásir á Hezbollah-samtökin í Líbanon og tugir eru sagðir hafa verið drepnir. Bandarískar herþotur hafa hrapað í lofthelgi Kúveit. Ekkert mannfall varð. Árásir voru gerðar á breskar herstöðvar á Kýpur. „Þetta er ekki Írak,“ segir Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sem segir að stríðið verði ekki endalaust Miðlar vestanhafs segja rangt að Íranar hafi verið að undirbúa árásir á Bandaríkin eða Ísrael FRÉTTAVAKT Fyrir 9 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist „Þetta var svona hjóna­band sem var fyrir fram ákveð­ið“ „Það var búið að segja mér að ég ætti að eignast vinkonu í haust,“ segir Björk sópransöngkona um kynni hennar og Þóru víóluleikara. Þeim varð fljótt vel til vina og hafa starfað saman í um áratug. Þær halda tónleika í Salnum um helgina. 2. mars 2026 kl. 6:56INNLENDAR FRÉTTIR Veður Spáð brjál­uðu veðri fyrir austan Veðurstofan hefur gefið út gular og appelsínugular viðvaranir vegna hríðarveðurs á austanverðu landinu. Lögreglan á Austurlandi hvetur fólk til að halda sig heima ef það þarf ekki að vera á ferðinni. 2. mars 2026 kl. 6:30ÍÞRÓTTIR Frjálsar „Ég er of­virk­ur í hug­mynd­um“ — smíð­uðu stól sem opnar dyrnar á stór­mót Ófeigur Ágúst Leifsson smíðaði stól sem nýtist fyrir keppni í fjölmörgum greinum fatlaðra. Stóllinn gerir nú keppendum kleift að taka þátt í fjölda greina. Sigurjón Ægir Ólafsson segist ætla á stórmót. 2. mars 2026 kl. 6:30ÍÞRÓTTIR Körfubolti Í dag: Litáar í hefnd­ar­hug mæta Ís­landi Í dag mætast Ísland og Litáen í undankeppni HM 2027 í körfubolta. Ísland vann frækinn endurkomusigur gegn Litáum í fyrri leiknum á föstudaginn var. 2. mars 2026 kl. 6:26ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Miðausturlöndum 31 látinn og um 150 særðir eftir miklar árásir á Líban­on Ísraelsher gerði miklar árásir á Líbanon í nótt, í hefndaraðgerðum sem herinn segir beinast gegn Hezbollah-hreyfingunni. Hreyfingin gerði árásir á Ísrael fyrr í nótt sem sagðar voru hefndaraðgerðir vegna dauða æðsta klerks Írans, Ali Kh

Share this article