Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjaforseti, greindi frá því í vitnisburði sínum fyrir eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings nýverið, að sambandi hans við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein hefði lokið 2003. Hann sagði að samskiptum þeirra hefði lokið þegar Clinton hitti styrktaraðila sem hentuðu betur en Epstein fyrir góðgerðasamtök Clintons, Clinton Global Initiative . Hann sagði að sér hefði þótt Epstein áhugaverður maður en hann hefði ekki haft mikinn áhuga á góðgerðarstarfi Clintons. Samskiptum þeirra hefði lokið löngu áður en upp komst um glæpi Epstein. Hillary Clinton, fyrrum utanríkisráðherra, var meðal annars spurð út í „Pizzagate, “ sem er útbreidd samsæriskenning sem heldur því fram að demókratar hafi gert út barnaníðshring í kjallara pizzustaðar í Washington D.C. Hún reiddist við spurninguna og sagði „Pizzagate “ vera staðlausa þvælu og að hún áttaði sig ekki á tengingu þess við yfirheyrsluna. Clinton-hjónin sögðust hvorugt hafa vitað af afbrotum Epstein eða samverkakonu hans Ghislaine Maxwell. Clinton-hjónin eru ekki grunuð um að hafa brotið af sér eða tengjast afbrotum Epstein. Myndböndin af vitnisburði þeirra eru hvort um sig rúmlega fjórar og hálf klukkustund að lengd. Hægt er að horfa á þau á heimasíðu eftirlitsnefndarinnar .