Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, segir að stjórnvöld verði að leita lausna til að hægt verði að halda áfram dýpkun Landeyjahafnar. Dýpkun hefur verið frestað vegna bilunar í dýpkunarskipinu Álfsnesi. Vegagerðin segir að unnið sé að því að fá varahluti erlendis frá og áætlar að viðgerð taki 10 til 20 daga. Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar ætlar að halda aukafund í dag um dýpkunarmál. Íris segir Vestmannaeyinga ekki geta sætt sig við að ekki verði unnið að opnun Landeyjahafnar meðan Álfsnesið er í ólagi. „Þetta er auðvitað bara áfall á þessum tíma. Loksins þegar það lítur út fyrir að hægt verði að opna höfnina þá koma þessar fréttir. Það er bara ekki hægt að sætta sig við að ekkert verði gert á meðan Álsnesið er í viðgerð,“ segir Íris. „Vegagerðin og innviðaráðuneytið verða bara að leita leiða til að hægt verði að sinna dýpkun og opna höfnina. Það er bara sú krafa sem við gerum. Við getum ekki sætt okkur við að við verðum bara látin bíða.“ Vestmannaeyingar búi við erfiðar samgöngur yfir allan vetrartímann. Þangað til annað verður tilkynnt siglir Herjólfur í Þorlákshöfn. „Þetta er miklu lengri sigling og þetta hefur áhrif á allt samfélagið.“