Sumir mega eta blóð og hold Krists, sameinast honum, öðlast eilíft líf. Aðrir ekki. Kaþólska kirkjan, á Íslandi sem og annars staðar, gerir sérstakan greinarmun á þeim sem einungis hneygjast til sama kyns og þeirra sem eru virkir . Samkynhneigðir mega sum sé meðtaka altarissakramentið, svo lengi sem þeir eiga sér ekki samkynja ástarlíf. „Allir eiga heima í kirkjunni og mega ákalla guð til að fá hreinsun sálarinnar og komast til himnaríkis,” segir séra Jakob Rolland, kanslari kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. „En það þýðir um leið að [maður þarf] virkilega að rannsaka eigið líferni.” Séra Jakob ræddi við Önnu Gyðu Sigurgísladóttur um altarissakramentin og syndir í fjórða þætti hlaðvarpsins Meining. Hann svarar því játandi þegar hann er spurður að því hvort kirkjan voni að samkynhneigðir breyti sér með tímanum, og bætir við að hún veiti þeim aðstoð. „Og það er það sem vantar mjög mikið í nútíma þjóðfélagi. Sá sem vill komast út úr slíku líferni fær enga aðstoð.” Jakob segir samkynhneigða sem leita til prests kaþólsku kirkjunnar „ekki geta fundið“ sálfræðinga eða félagsráðgjafa til að hjálpa sér. Þess vegna þurfi kirkjan að vera til staðar. Hann segir dæmi um að fólk hafi leitað til kaþólsku kirkjunnar á Íslandi gagngert til þess að „hætta“ að vera samkynhneigt. „Conversion” lykilorð í kaþólsku lífi Anna Gyða las meðal annars skilgreiningu á bælingarmeðferð (e. conversion therapy) fyrir Jakob og spurði hvort hann honum þætti lýsingin eiga við um aðferðir kirkjunnar. Bælingarmeðferð er samheiti yfir aðferðir sem miða að því að breyta, bæla eða afnema kynhneigð eða kynvitund einstaklings, yfirleitt með það að markmiði að gera samkynhneigt eða tvíkynhneigt fólk gagnkynhneigt eða að breyta kynvitund transfólks t.d. „Kynhneigð er bara einn þáttur af mörgum öðrum sem varða tilhneigingar einstaklingsins til einhvers lífsstíls sem er ekki góður fyrir einstaklinginn og ekki góður fyrir samfélagið,” svaraði Jakob. „Og „conversion” – sinnaskipti – þetta er lykilorð í daglegu lífi hjá kaþólsku fólki. Við erum í þeirri stöðu, stöðugt, að snúa okkur frá hinu illa til þess góða.” Jakob segir helstu úrræðin sem kirkjan býður upp á felast í þátttöku í daglegu lífi safnaðarins, helgihaldi og bænum. Samtal við presta, nunnur og aðra hópa sem sækja kirkjuna styrki fólk. „Allir sem mæta í kirkjuna eru með sín vandamál og syndir, glíma við slæmar tilhneigingar að einhverju leyti. Allir eru krjúpandi, stundum grátandi frammi fyrir guði, frammi fyrir styttu heilagrar Maríu meyjar og biðja um hjálp. Við erum allir í sömu stöðunni í rauninni.” Hætta á óafturkræfum áhrifum Bann við þvinguðum bælingarmeðferðum, og bælingarmeðferðum á börnum, var fest í lög á Íslandi árið 2023. Í greinargerð frumvarpsins sagði að slíkar meðferðir væru ekki studdar af vísindum, væru siðferðilega rangar og gætu haft verulega neikvæð óafturkræf áhrif á andlega og líkamlega heilsu fólks sem látið er undirgangast þær. Opinber afstaða kaþólsku kirkjunnar er sú að hún stundi ekki eiginlega bælingameðferð þar sem meðferð þeirra sé ekki læknisfræðileg heldur siðferðisleg og andleg leiðsögn. Þá er jafnan tekið fram að allir kristnir menn séu hvattir til að stjórna kynhvöt sinni samkvæmt siðfræðikenningum kirkjunnar, ekki bara hinsegin fólk. Gagnrýnendur kirkjunnar telja að þegar markmiðið sé að fólk bæli eða afneiti kynhneigð sinni, og þegar trúarleg eða sálfræðileg ráðgjöf beinist að því að „laga’’ hneigðina sé – óháð aðferðinni – í raun um bælingarmeðferð að ræða. Gestrisni ekki merki um aukna mildi Í lok síðasta árs bauð Leó páfi þekktum Jesúíta presti, James Martin, í Vatíkanið en sá er vinsæll á samfélagsmiðlum fyrir að boða breytt viðhorf til samkynhneigðra. Hinsegin fólk víða um heim hefur bundið vonir við að Leó verði mildari í afstöðu sinni til samkynhneigðra en forverar hans en gestrisni hans virðist ekki endilega boð um breytingar. Fyrr í þessum mánuði bauð páfinn þannig til sín leiðtogum Courage International, alþjóðlegs kaþólsks trúboðastarfs meðal kaþólskra presta sem hefur það markmið að veita hinsegin fólki aðstoð við að lifa í samræmi við kenningar kirkjunnar um skírlífi. Courage stendur fyrir svokölluðum reparative „therapies”’ - umbreytingaraðferðum sem byggjast á því að kynhneigð sé vandamál sem á að bæla, hafa hemil á eða leiðrétta. Einkafundir páfa eiga það til að veita merki um stuðning en þar sem hann hefur nýverið tekið á móti fólki með ólíkar skoðanir hvað varðar líferni hinsegin fólks, er erfitt að segja til um afstöðu hans og Vatíkansins til syndarinnar sem líferni hinsegin fólks felur í sér. Kaþólska kirkjan á Íslandi aðstoðar fólk við að bæla niður samkynhneigð. Þetta segir kanslari safnaðarins sem telur það skyldu kirkjunnar að veita slíka þjónustu.