Vélgæslumaður RARIK Á Borgarfirði eystra skreið við annan mann á milli húsa í brjáluðu veðri í nótt til að gera við varaflstöðina í bænum. RARIK-menn á stórum jeppum játuðu sig sigraða á skarðinu. Margar björgunarsveitir að störfum Svartabylur og dýrvitlaust veður var á Austurlandi í gær og fram á nótt. Björgunarsveitir frá Seyðisfirði, Neskaupstað, Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði, Vopnafirði, Egilsstöðum og Jökuldal hjálpuðu ófáum vegfarendum, mest innanbæjar enda skóf yfir götur og mjög blint var á köflum. Einnig voru útköll hjá björgunarsveit á Þórshöfn og í Fnjóskadal fyrir norðan. Björgunarsveitir aðstoðuðu heilbrigðisstarfsfólk að komast til og frá vinnu enda varasamt að fara gangandi á milli húsa. Í Neskaupstað prófaði Björgunarsveitin Gerpir í fyrsta sinn sérstakar óveðursgrímur sem skýla andlitinu og veitti ekki af. Þegar leið á kvöldið fækkaði verkefnum en þá voru vandræðin fyrst að byrja á Borgarfirði eystra. „Þurftum að skríða þarna á milli húsa“ Rafmagn fór af um klukkan sjö og líklega hefur stormurinn brotið línuna. Varaflstöðin fór í gang en hélst ekki inni og greinilegt að eitthvað var að. „Ég sagði þeim að ég kæmist ekkert inn eftir það væri svo hvasst. Svo lægði þarna upp úr níu held ég. Þá fórum við af stað, við Villi, inn eftir. Þegar við fórum út í hús þá var svo hvasst að við stóðum ekki við þurftum að skríða þarna á milli húsa og vindmælirinn í næsta húsi hann fór eitthvað yfir 50 metra. Þannig að það var andskoti hvasst,“ segir Jón Helgason en hann sinnir vélgæslu fyrir RARIK á Borgarfirði. Varaaflsstöðin er í rúmlega 300 metra fjarlægð frá Bakkavegi þar sem Jón býr ásamt konu sinni Kristjönu Björnsdóttur sem sagði frá óveðrinu í Síðdegisútvarpinu í gær. Rafmagn fór af á Borgarfirði eystra í fárviðrinu sem gekk yfir Austurland í gær og í ofanálag bilaði varaafl. Yfir 50 metra á sekúndu mældust á vindmæli í þorpinu og viðgerðarmaður þurfti að skríða milli húsa til að koma rafmagni á aftur. Í ljós kom að kælivifta fyrir stöðina snerist ekki og líklega hafði kófað inn í hana. Og núna er þetta búið að vera í lagi síðan upp úr þrjú í nótt. Þá var ég búinn að koma þessu inn. Og síðan er hún búin að ganga eins og klukka,“ segir Jón. RARIK sendi menn á jeppum af stað til Borgarfjarðar en vegurinn yfir Vatnsskarð var kolófær. „Þeir voru held ég á tveimur bílum nema að það stóð til að kalla út blásara og eitthvað. En svo þegar þetta komst í lag þá var hætt við það og þeir sneru bara við. Ætluðu að fara heim og hvíla sig og fara svo upp á Sandaskörð í morgun eða í dag og kíkja eftir línunni,“ segir Jón Helgason vélgæslumaður RARIK á Borgarfirði eystra.