Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 22 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Vestfirðir Lokuðu vegi vegna snjóflóðs í Raknadalshlíð Hugrún Hannesdóttir Diego Vegagerðin hefur lokað Barðastrandarvegi við Raknadalshlíð vegna snjóflóðs sem féll yfir hann í dag. Samkvæmt ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands var gert ráð fyrir að snjóflóðahætta myndi aukast þar. Tilkynnt var um snjóflóðið eftir hádegi í dag. Engar upplýsingar liggja fyrir um að neinn hafi verið í hættu vegna þess. Lögreglan á Vesturlandi varar einni við því að Gemlufallsheiði gæti verið lokað seinna í dag vegna veðurs. Hægt er að fylgjast með upplýsingum um færð á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.is. Fyrir 5 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Eldgos við Sundhnúksgíga Kvikusöfnun að nálgast hámark frá upphafi hrinunnar Veðurstofan gerir ráð fyrir að kvikumagn undir Svartsengi verði það mesta sem safnast hefur milli eldgosa frá því að hrinan hófst í desember 2023. Kvika hefur safnast í um 210 daga og um 22,5 milljón rúmmetrar af kviku hafa safnast fyrir. Fyrir 23 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Spacestation í útbreiddasta útvarpsþætti Evrópu Hljómsveitin Spacestation verður fulltrúi Íslands í útvarpsþættinum Europe's Biggest Gig sem sendur verður út á fimm evróskum almannaútvarpsstöðvum í kvöld. Fyrir 58 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Leikdagur: Stelpurnar okkar mæta sterkasta liði heims Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir í dag Spáni. Þetta er fyrsti leikur liðanna í undankeppni HM 2027 í Brasilíu. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og er sýndur á RÚV. Spánn er ríkjandi heims- og Evrópumeistari. Hér hitum við upp fyrir leik í lifandi leikdagsvakt. Við birtum gang leiksins, viðtöl og helstu tilþrif. FRÉTTAVAKT Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Landbúnaður Trausti Hjálmarsson verður áfram formaður Bændasamtakanna Ólöf Rún Erlendsdóttir Trausti Hjálmarsson, sauðfjárbóndi í Austurhlíð í Biskupstungum, var í dag sjálfkjörinn formaður Bændasamtaka Íslands til 2028. Trausti hefur gegnt formennsku í samtökunum síðustu tvö ár. Bændasamtökin kjósa sér formann á tveggja ára fresti til tveggja ára í senn með rafrænni kosningu, en að þessu sinni var Trausti einn frambjóðenda og varð þá sjálfkjörinn þegar framboðsfrestur rann út á miðnætti. Hann er búfræðingur að mennt og sat í stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda, sem síðar varð deild sauðfjárbænda í Bændasamtökunum, árin 2017-2024. Þar var hann formaður árin 2022-2024. Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands ásamt Hönnu Katrínu Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, og Margréti Ágústu Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna. Bændasamtök Íslands / Valur Þorsteinsson Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Holland Týnt verk Rembrandts rak á fjörur sérfræðinga eftir áratugi Safnverðir í Hollandi staðfestu að verk sem rak á fjörur þeirra var sannarlega eftir meistarann Rembrandt. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Handbolti Alexandra Líf í stað Ölfu Brár í landsliðið Arnar Pétursson landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta hefur þurft að gera frekari breytingar á liði sínu. Ísland mætir Svartfjallalandi á Ásvöllum annað kvöld í undankeppni EM. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Frambjóðendur geta byrjað að safna meðmælum Landskjörstjórn opnaði í dag fyrir söfnun meðmæla með framboðum til sveitarstjórnarkosninga. Kjósendur geta mælt með einu framboði í sínu sveitarfélagi. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Hefur þú efni á því að fara á HM í fótbolta í sumar? Það styttist í heimsmeistaramótið í fótbolta sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. Mótið hefur aldrei verið stærra, aldrei verið lengra og aldrei verið dýrara. Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi kíkti á Sportrásina á Rás 2. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Gagnaversrisi og lífeyrissjóður keyptu atNorth á 485 milljarða Bandaríska gagnaversfyrirtækið Equinix og kanadíski lífeyrissjóðurinn Canada Pension Plan Investment Board hafa gengið frá kaupum á atNorth, sem rekur þrjú gagnaver á Íslandi, fyrir fjóra milljarða Bandaríkjadala. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Leiðsögumaður gleymdi ellefu ferðum til Íslands Útlendingur sem var staðinn að því að veita ferðaþjónustu hér á landi án tilskilinna leyfa fær ekki að koma til landsins næstu tvö árin. Hann kvaðst aðeins einu sinni hafa komið til landsins en vegabréfið sagði aðra sögu. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stríð í Miðausturlöndum Aukin áhersla á kjarnavopn „alvarleg vatnaskil“ Hernaðarsagnfræðingur segir tíma afvopnunar kjarnavopna búinn í bili. Alvarleg vatnaskil séu að verða hvað kjarnorkuvopn varðar og óvissan sé mikil fram undan. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn birtir lista sinn á Seltjarnarnesi Sjálfstæðisflokkurinn á Seltjarnarnesi hefur birt framboðslista fyrir bæjarstjórnarkosningar í vor. Ein breyting varð á efstu sætum þar sem bæjarfulltrúi sem hlaut þriðja sæti ákvað að hætta við framboð. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Austurland Þurftu að skríða á milli húsa til að koma rafmagni á Borgarfjörð eystra Rafmagn fór af á Borgarfirði eystra í fárviðrinu sem gekk yfir Austurland í gær og í ofanálag bilaði varaafl. Yfir 50 metra á sekúndu mældust á vindmæli í þorpinu og viðgerðarmaður þurfti að skríða milli húsa til að koma rafmagni á aftur. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Íslendingar ekki með í kjarnorkufælingaráætlun Frakka Íslendingar eru ekki þátttakendur í boðaðri kjarnorkufælingaráætlun Frakklandsstjórnar, en það er ekki óeðlilegt að Evrópa treysti sínar varnir segir utanríkisráðherra. Íslenskum þingmönnum bauðst samtal við franska sendiherrann um áætlun forsetans. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestmannaeyjabær Ætlar að þrýsta á innviðaráðuneytið í dýpkunarmálum Bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar vill að stjórnvöld tryggi að dýpkun Landeyjahafnar stöðvist ekki þegar bilun verður í dýpkunarskipi. Dýpkun hefur verið frestað vegna bilunar í skipinu Álfsnesi og gert er ráð fyrir að viðgerð ljúki í næstu viku. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar Framsókn og VG bæta lítillega við sig í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar. Samfylkingin og Miðflokkurinn eru einu flokkarnir sem bæta við sig þingsætum frá kosningunum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Til rannsóknar hvort hrottaleg árás í byrjun árs hafi verið tilraun til manndráps Lögregla rannsakar hvort hrottaleg árás og frelsissvipting í upphafi árs hafi verið tilraun til manndráps. Maður fannst þá illa útleikinn utandyra í miklum kulda eftir að hafa verið misþyrmt í bíl. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti „Það er lítil pressa á okkur og mikil á þeim“ Glódís Perla Viggósdóttir fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta gerir ráð fyrir erfiðum leik við heimsmeistara Spánar í undankeppni HM í kvöld. Hún segir þó tækifæri liggja fyrir íslenska liðið. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Matur Bjuggu til skyr frá grunni sem var „bara eitthvað súrt“ Krakkarnir í leikskólanum Yl í Mývatnssveit lærðu að gera skyr frá grunni. Bragðið lagðist misvel í nemendur, sumum þótti það gott en öðrum fannst það heldur súrt. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Jón Þorsteinn ráðinn forstjóri Beru Brynjólfur Þór Guðmundsson Jón Þorsteinn Oddleifsson. Aðsend Jón Þorsteinn Oddleifsson hefur verið ráðinn forstjóri Beru, móðurfélags Ölgerðarinnar, Danóls, Kjarnavara, Gæðabaksturs og fleiri félaga. Jón Þorsteinn var síðustu ár framkvæmdastjóri fjármála- og mannauðssviðs Ölgerðarinnar. Hann vann áður við viðskiptaþróun hjá Landsbréfum, var fjármálastjóri endurreists Landsbanka eftir hrun og þar áður forstöðumaður fjárstýringar Landsbankans. Nafni Ölgerðarinnar var breytt í Beru fyrir áramót og verður nafn Ölgerðarinnar notað á dótturfélag sem sér um drykkjarvörur. Bera var nafn móður Egils Skallagrímssonar í Egils sögu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Vara við fæðubótarefni vegna salmonellu Fréttastofa RÚV Matvælastofnun varar fólk við fæðubótarefni sem selt hefur verið í netverslun. Sýklalyfjaónæm salmonella hefur greinst í Rosabella Moringa fæðubótarefni með best fyrir dagsetningar frá 03/2027 til 11/2027. Matvælastofnun segir að fólk eigi ekki að neyta fæðubótarefnisins heldur farga því. Fólk getur veikst af neyslu þess og koma einkennin þá fram eftir tólf til 72 klukkustundir og geta staðið í fjóra til sjö daga. Þau lýsa sér í niðurgangi, hita og magakrömpum. Ung börn og eldri eru viðkvæmari fyrir. Fæðubótarefnið er selt í netverslunum á borð við eBay, Amazon, Shein og Etsy. Rosabella Moringa fæðubótarefni Aðsend Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stríð í Miðausturlöndum Íslensk fjölskylda í Katar reynir að komast burt Íslensk kona sem býr í Doha, höfuðborg Katar, segir ástandið skelfilegt vegna stríðsástands í heimshlutanum. Hún reynir að skipuleggja brottför en það er hægara sagt en gert. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Dópaður þegar hann barði æskuvin sinn í fangelsi Fangi var í síðustu viku sakfelldur fyrir líkamsárás á Litla-Hrauni. Hann barði félaga sinn eftir deilur um lyf sem þeir voru að nota í fangelsinu. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Margar þjóðir sniðganga setningarhátíð Ólympíumóts fatlaðra Mörg lönd munu sniðganga setningarhátíð Ólympíumóts fatlaðra sem sett verður í Cortina d‘Ampezzo á Ítalíu á föstudagskvöld. Ástæðan er sú að Rússland og Belarús fá að taka þátt í leikunum undir eigin fánum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Davíð Oddsson fær opinbera útför Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra, fær opinbera útför í samræmi við verklagsreglur forsætisráðuneytisins. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Miðausturlöndum Átökin ekkert á undanhaldi – Vitað um 140 Íslendinga nærri átakasvæðum Ísraelskum hermönnum hefur verið skipað að ráðast inn í Líbanon og tryggja hernaðarleg mikilvæg svæði nærri landamæru