Dr. Vilhjálmur Egilsson hefur tekið við starfi ráðgjafa stjórnar og rektors Háskólans á Bifröst. Fram kemur í tilkynningu skólans að Vilhjálmur muni í nýju hlutverki veita stjórn skólans ráðgjöf í þeim verkefnum sem fram undan séu. Var áður rektor skólans Þar segir að starf hans muni snúa að því að efla samstöðu meðal starfsmanna, vinna að öflugri fjármögnun háskólans og gerð rekstraráætlana auk þess að koma að uppfærslu og þróun gæðastarfs og almennri stefnumótun skólans. Vilhjálmur gegndi stafi rektors Háskólans á Bifröst á tímabilinu 2013 til 2020. Hann hefur einnig starfað sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og ráðuneytisstjóri sjávarútvegsráðuneytisins ásamt því að sitja í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Ólga í kringum Bifröst undanfarnar vikur Töluvert hefur gustað um Háskólann á Bifröst undanfarnar vikur. Í janúar lýsti félag akademískra starfsmanna yfir vantrausti á hendur Margréti Jónsdóttur Njarðvík, þáverandi rektor skólans. Þá höfðu þrír starfsmenn skólans verið kærðir til siðanefndar vegna meintra brota á höfundarrétti. Siðanefnd vísaði síðar öllum ásökunum á hendur starfsmannanna á bug, en út frá málinu tók að bera á frekari deilum innan skólans sem birtust meðal annars í víðtækri óánægju meðal kennara og nemenda. Baðst Margrét í kjölfarið lausnar frá starfi sínu þar sem ekki ríkti sátt um hana og hefur Ólína Þorvarðardóttir tekið við hlutverki starfandi rektors Háskólans á Bifröst.