Erlent par sem hafði verið á ferðalagi á gönguskíðum í fimm daga leitaði skjóls í 60 ára gömlu björgunarskýli við Hreysiskvísl í gærmorgun þegar veðrið versnaði. Fólk var þá orðið nokkuð kalt og annað þeirra nokkuð þrekað og annað mögulega með kalsár í andliti. Fólkið óskaði eftir aðstoð björgunarsveita í gærmorgun með því að virkja neyðarboð í staðsetningartæki sínu. Boðin bárust yfirvöldum hér í gegnum Gamin-miðstöðina í Bandaríkjunum. Þá var ljóst að fólkið væri við Hreysiskvísl, töluvert norðan við Þórisvatn á Sprengisandsleið. Björgunarsveitir allt frá Þjórsá úr vestri að Skaftártungum í austri voru kallaðar út auk áhafna snjóbíla á Suðurlandi. Þetta var fyrsta viðbragð. Þegar í ljós kom að færðin yrði ekki til trafala voru snjóbílarnir afturkallaðir. Fjallajeppar Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu og Björgunarsveitarinnar Dagrenningar héldu áfram för að neyðarskýlinu. Björgunarsveitarfólk kom að skýlinu um klukkan tólf í gær, eftir tveggja tíma akstur. Það flutti fólkið og búnað þess til byggða. Farið var með fólkið á Heilsugæsluna á Hellu til aðhlynningar.