Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Virðist ekki hafa áttað sig á að hann var kominn á vitlausa akrein

  • What: Traffic accident investigation report released
  • Impact: Reveals causes of a fatal collision
Read Full Article →

Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur að ökumaður sem lést í umferðarslysi í Berufirði í mars hafi ekki veitt því athygli að hann var kominn yfir á vinstri vegarhelming. Meginorsök slyssins er að mati nefndarinnar sú að bíllinn var kominn yfir á vitlausa akrein. Báðum bílum var ekið of hratt í aðdraganda árekstursins, á rétt rúmlega 100 kílómetra hraða. Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar um umferðarslys á Berufirði í mars. Tveir bílar rákust framan á hvorn annan. Auk þess að greina orsakir slyssins tekur rannsóknarnefnd fram að af öryggisástæðum ættu innflytjendur bíla ekki að flytja inn bíla sem eru ekki með loftpúða fyrir farþega í framsæti. Enginn loftpúði var við farþegasætið við hlið bílstjórans í öðrum bílnum, sendibíl sem hafði verið breytt til útleigu fyrir ferðamenn. Ökumaður annars bílsins lést í slysinu og farþegi í framsæti þess bíls slasaðist alvarlega. Þeir voru á Mercedes Benz. Ökumaður og farþegi Volkswagen Caddy-sendibíls slösuðust einnig alvarlega. Allir fjórir voru með bílbelti. Rannsókn nefndarinnar leiddi í ljós að ekkert sem tengdist bílunum eða aðstæðum á slysstað olli árekstrinum. Ökumaður Mercedes Benz-bílsins virðist ekki hafa áttað sig á því að hann væri kominn yfir á gagnstæða akrein. Hann lést og farþegi hans mundi ekki eftir slysinu. Ökumaður og farþegi hins bílsins sögðust hafa orðið varir við að hinn bíllinn væri á vitlausri akrein og bílstjórinn nauðhemlaði. Í skýrslunni kemur fram að enginn loftpúði var farþegamegin í framsætum Caddy-sendibílsins sem var leigður ferðamönnum. Að auki hafði gler í skilrúmi milli farþegarýmis og farmrýmis verið fjarlægt þegar komið var upp eldunar- og svefnaðstöðu í farangursrýminu. Þrátt fyrir þetta hafði bíllinn staðist skoðun án athugasemda tæpum tveimur vikum fyrir slysið. Eigandi bílsins sagði að glerið hefði verið tekið úr til að tryggja flóttaleið úr farmrýminu, til dæmis ef rafmagnsleysi kæmi í veg fyrir að hægt væri að opna hliðar- og afturhurðir.

Share this article