Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Viðskiptaráðherra svarar spurningum nefndar um tengsl við Epstein

Read Full Article →

Howard Lutnick, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, hefur fallist á að svara spurningum eftirlits- og stjórnskipunarnefndar Bandaríkjaþings sem rannsakar glæpi kynferðisbrotamannsins Jeffreys Epstein. Howard Lutnick er viðskiptaráðherra í ríkisstjórn Donalds Trump.EPA / WILL OLIVER / POOL Lutnick kom nokkrum sinnum á eyju Epsteins í Karíbahafi nokkrum árum eftir að hann segist hafa slitið öll tengsl við hann, samkvæmt vísbendingum í þeim milljónum skjala sem dómsmálaráðuneytið birti í janúar. James Comer formaður nefndarinnar greindi frá þessu á X þar sem hann fagnar ákvörðun ráðherrans. Ekki kemur fram hvenær Lutnick flytur vitnisburð sinn.

Share this article