Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Innkalla leikföng vegna gruns um asbest

  • What: Toys recalled due to possible asbestos contamination
  • Impact: Parents should stop using the affected toys immediately
Read Full Article →

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) vekur athygli á innköllun á leikföngum frá vörumerkinu Stretcherz. Leikföngin eru mjúk viðkomu, teygjanleg og innihalda fylliefni sem er sandur. Talið er mögulegt að varan sé heilsuspillandi þar sem grunur leikur á að fylliefnið geti verið mengað með asbesti. Um er að ræða eftirfarandi vörur: Stretch Super Heros 23 cm og 16 cm, Squard Dinos, Stretchy Slammerz og Stretch Squad XXL. Innkalla þarf fimm vörunúmer á Íslandi og hefur innflutningsfyrirtækið Danco hafið innköllun á eftirfarandi vörunúmerum: 1350085 / 1350093 / 1351053 / 1376624 / 1376630 Vörurnar voru seldar í ýmsum verslunum bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Leikföngin voru meðal annars til sölu í Bónus, Húsasmiðjunni, Samkaup, Nettó, Byko, Hans og Grétu og hugsanlega á fleiri stöðum. Að minnsta kosti 800 vörur eru taldar vera í umferð á Íslandi. Allir hvattir til að taka leikfangið strax úr umferð Þeir sem eiga eintök af leikföngunum eru hvattir til að taka leikfangið strax úr umferð. Setja þarf leikfangið í poka, loka honum vel (t.d. líma fyrir) og: skila vörunni til söluaðila, eða skila til heildsölunnar Danco, eða fara með vöruna beint í förgun til Sorp.

Share this article