- What: Concerns over mobile network regulations
- Impact: Potential impact on telecommunications in Iceland
Innlent | Morgunblaðið | 4.3.2026 | 22:00 Gera alvarlegar athugasemdir: Millilandasæstrengir ekki nóg Gagnrýnt er að bann við botnfestingum innan helgunarsvæða sæstrengja gildi aðeins um strengi sem tengja Ísland við önnur lönd. mbl.is/Árni Sæberg Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Varnarmál Íslands Ríkislögreglustjóri vill efla hryðjuverkavarnir Röng upplýsingamiðlun getur grafið undan trausti Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Segir varaflugvelli vera þjóðaröryggismál Höfum öll eitthvað fram að færa » Fleiri tengdar fréttir Fjarskiptastofa, Neyðarlínan, Míla hf. og Ljósleiðarinn ehf. gera alvarlegar athugasemdir við drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um fjarskipti, lögum um Fjarskiptastofu og lögum um fjölmiðla. Einkum snúa athugasemdirnar að breytingum sem fyrirhugað er að gera á lögum um fjarskipti um að bann við botnfestingum sjókvíaeldis innan helgunarsvæða gildi aðeins um fjarskiptastrengi sem tengi Ísland við önnur lönd. Í umsögnum til Alþingis er varað við því að með breytingunum skapist gloppa í vernd mikilvægra innviða. Mikilvægir hlekkir Fjarskiptastofa bendir á að öruggar fjarskiptatengingar við útlönd teljist þjóðaröryggismál en að sæstrengir séu einnig mikilvægir hlekkir í stofnlínukerfi innanlands, m.a. með þverun fjarða og tengingum eyja. Fjarskiptastofa setur spurningarmerki við að verndarákvæði helgunarsvæða sæstrengja einskorðist við útlandatengingar enda séu verndarhagsmunir ákvæðisins í eðli sínu fjarskiptaöryggi og allt rof á fjarskiptasambandi geti haft alvarlegar afleiðingar þótt umfang útfalls geti verið staðbundið innanlands. Að áliti Fjarskiptastofu mætti skoða hvort hægt sé að skilgreina þær stofnleiðir sæstrengja sem njóta eigi viðbótarverndar lagaákvæðisins gegn botnfestingum sjókvía með almennari hætti eða að heimila ráðherra að útfæra nánar andlag slíkrar verndar í reglugerð. Sett skör lægra Neyðarlínan gerir einnig athugasemdir við að ákvæðið nái aðeins til strengja sem tengja Ísland við önnur lönd og bendir á að fjölmargir fjarskiptastrengir liggi í sjó við Ísland og þveri firði. Sérstaklega er vísað til Vestfjarða, þar sem sæstrengir eru lífæð fjarskipta fyrir íbúa svæðisins. Að mati Neyðarlínunnar skýtur skökku við að öryggi almennings þar sé sett skör lægra en annarra landsmanna með þessari breytingu. Fyrir utan að breytingin skerði verulega öryggi fjarskipta má ætla að ábyrgð á tjóni á strengjum verði einnig afar óljós, segir í umsögn Neyðarlínunnar. Lagt er til að ákvæðið nái til allra fjarskiptastrengja í sjó. Veruleg gloppa í vernd Míla gagnrýnir þá m.a. í umsögn sinni að sú afmörkun, að bann við botnfestingum sjókvíaeldis innan helgunarsvæða gildi eingöngu um fjarskiptastrengi sem tengja Ísland við önnur lönd, hafi ekki verið hluti af samráðsgögnum sem kynnt voru í haust. Þá liggi ekki fyrir skýringar í greinargerð frumvarpsins um hvaða rök liggi að baki breytingunni eða hvort hún hafi komið inn á síðari stigum og þá af hvaða ástæðum. Míla telur að með aðgreiningunni geti skapast veruleg gloppa í vernd fjarskiptainnviða. Innanlandssæstrengir geti í reynd verið lykilinnviðir fyrir fjarskipti á stórum landsvæðum, bæði fyrir almenna þjónustu og öryggistengingar, þar á meðal í samhengi við almannavarnir, Landhelgisgæslu og samstarf við Atlantshafsbandalagið. Míla telur þá ekki nægan grundvöll til að meta áhættu af botnfestingum sjókvía gagnvart sæstrengjum óverulega, þrátt fyrir að ráðuneytið hafi sagt engin dæmi finnast um slíkt tjón. Félagið bendir á að slíkt tjón geti haft mjög alvarlegar og víðtækar afleiðingar þótt líkur á tjóni séu litlar og getur því verið óvarlegt að bíða eftir fordæminu áður en ráðstafanir eru gerðar. Í umsögn Mílu segir jafnframt að skortur á tjónstilvikum kunni m.a. að skýrast af því að botnfestingar sjókvía séu almennt ekki leyfðar innan helgunarsvæða sæstrengja. Míla leggur til að vernd verði bundin við fjarskiptastrengi sem teljist mikilvægir samkvæmt skilgreindum viðmiðum, með t.d. hliðsjón af rekstraröryggi og hlutverki í neyðarsamskiptum. Einnig að ráðherra eða viðeigandi stjórnvald geti með reglugerð skilgreint hvaða strengir falli undir aukna vernd á grundvelli gagnsærra skilyrða. Tvö alvarleg tjónsatvik Ljósleiðarinn telur breytingarnar ekki í samræmi við markmið laganna og telur að með þeim sé vernd fjarskiptainnviða skert og hætta á tjóni aukin. Vísað er til reynslu af tveimur alvarlegum tjónsatvikum á sæstreng til Vestmannaeyja, árið 2010 vegna athafna skips en viðgerð lauk ekki fyrr en nærri fimm mánuðum síðar og í nóvember 2023 þegar akkeri skips sleit lagnir en viðgerð tók um átta mánuði. Félagið gagnrýnir rúmar og matskenndar undanþáguheimildir ráðherra í frumvarpinu, telur að skortur sé á skýrum og hlutlægum viðmiðum og að tryggja þurfi skyldubundið samráð við eigendur og rekstraraðila strengja. Að lágmarki þurfi að lögfesta tilkynningarskyldu til þeirra sem beinna hagsmuna eiga að gæta. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Varnarmál Íslands Ríkislögreglustjóri vill efla hryðjuverkavarnir Röng upplýsingamiðlun getur grafið undan trausti Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Segir varaflugvelli vera þjóðaröryggismál Höfum öll eitthvað fram að færa » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fyrsta tap Carrick kom gegn 10 Newcastle-mönnum – Óvænt dönsk hetja Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Gefur hernaðaraðgerðum „15 af 10“ í einkunn Orri í bikarúrslit á Spáni Gera alvarlegar athugasemdir: Millilandasæstrengir ekki nóg Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Er árásin á Íran brot á lögum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Krefst svara: „Saga margra ungmenna“ Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Bandarískur kafbátur sökkti skipinu Umdeild próf lögð fyrir nema Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Evrópa komin í ógöngur með regluverk Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Efnahagsaðgerðir máske eftir páska RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Fyrsta tap Carrick kom gegn 10 Newcastle-mönnum – Óvænt dönsk hetja Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Gefur hernaðaraðgerðum „15 af 10“ í einkunn Orri í bikarúrslit á Spáni Gera alvarlegar athugasemdir: Millilandasæstrengir ekki nóg Umræðan Lausnargjald Evrópuhraðlestarinnar Er árásin á Íran brot á lögum? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu Felldu tillögu um að skoða aðild að ESB Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Bandarískur kafbátur sökkti skipinu Mest lesið Í gær Í vikunni Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Evrópa komin í ógöngur með regluverk Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Efnahagsaðgerðir máske eftir páska RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Mikil kvika: Veðurstofan endurskoðar sviðsmyndir Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“