Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 5.3.2026 | 12:19 Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Inga Sæland og Sigurður Örn Hilmarsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson/Eyþór Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Tilboðið olli mér miklum vonbrigðum Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Segir málflutning Sigríðar hallærislega pólitík Greinilega „skiptimynt“ fyrir Evrópuumræðu „Það er of mikill órói í þessu húsi í dag“ » Fleiri tengdar fréttir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sagðist á Alþingi vera búin að fá hálfgert ógeð á því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri” gagnrýna frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu. Þetta sagði hún í svari á Alþingi við fyrirspurn Sigurðar Arnar Hilmarssonar, varaþingmanns Sjálfstæðisflokksins. Hann talaði um misvísandi skilaboð ráðherra og þingmanna ríkisstjórnarflokkanna þar sem ýmist væri slegið í eða úr varðandi þýðingu frumvarpsins og skuldbindingu þess gagnvart borgurunum í landinu. Frétt af mbl.is Greinilega „skiptimynt“ fyrir Evrópuumræðu „Er frumvarpinu ætlað að tryggja að bætur almannatryggingakerfisins hækki á hverju ári til samræmis við launavísitölu en þó aldrei minna en verðlag, eins og segir í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, eða er hér ekki um eiginlega breytingu um að ræða á núverandi fyrirkomulagi, þ.e. að hér eftir sem hingað til þá munu stjórnvöld hafa svigrúm til að ákvarða fjárhæð greiðslna hverju sinni eftir því sem þau telja efnahagsmál leyfa?” spurði Sigurður Örn. Inga Sæland. mbl.is/Eyþór „Mér misbýður þessi málflutningur“ Inga steig í pontu og spurði hvort öryrkjar og eldri borgarar ættu ekki rétt á því að fá aðeins meira útborgað en 312 þúsund krónur á mánuði í „okurdýru samfélagi”. Hún sagði málið snúast um að 62. grein almannatryggingalaga yrði ekki lengur misnotuð á þann hátt að geðþóttavald réði því hvort greiðslur í almannatryggingakerfinu fylgdu launum, launaþróun og launavísitölu í landinu „ eða hvort mönnum sé í sjálfsvald sett að velja það sem lægra er, eins og neysluvísitöluna“. Frétt af mbl.is Seðlabankinn gerir alvarlegar athugasemdir „Ég er búin að fá hálfgert ógeð, í orðsins fyllstu merkingu, á því að hlusta á hverja silkihúfuna á fætur annarri hér úti í samfélaginu og nú nýjast Læknafélag Íslands, þeir sem meta fólkið til örorku, þeir sem eru sennilega með meðaltal sex milljónir á mánuði í laun. Mér þætti gaman að sjá þá fá útborgaðar 312.000 kr. og koma svo svona fram eins og þeir eru að gera núna. Mér misbýður þessi málflutningur. Ég tek ekki þátt í honum lengur,” hélt Inga áfram og sagðist stolt af því að ríkisstjórnin væri að lyfta upp lægstu laununum í landinu.“ Sigurður Örn Hilmarsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson Þarf engan lesskilning Sigurður Örn sagðist ekki skilja svarið öðruvísi en að Inga væri að tala með sama hætti og hún gerði við fyrstu umræðu málsins þegar hún sagði að framvegis myndu greiðslur almannatrygginga fylgja raunverulegri þróun launavísitölu sem Hagstofa Íslands reiknar út og birtir. „Þegar hæstvirtur þingmaður talar um það hvort maður sé kominn í mótsögn við sjálfan sig: Nei, ég hef ævinlega verið skýr í mínum málflutningi og það þarf engan sérstakan lesskilning til að skilja það sem út úr mér kemur,” sagði Inga Sæland í framhaldinu. Hún sagði markmið ríkisstjórnarinnar vera að rjúfa þá kjaragliðnun sem hefði verið viðhaldið hérlendis um árabil. Tengdar fréttir Alþingi Tilboðið olli mér miklum vonbrigðum Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Segir málflutning Sigríðar hallærislega pólitík Greinilega „skiptimynt“ fyrir Evrópuumræðu „Það er of mikill órói í þessu húsi í dag“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tólf manna hópur Íslands klár Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Árásin á Íran sögð boðuð í Opinberunarbókinni Fjórir handteknir eftir alvarlega árás Helgafellið vélarvana og dregið til hafnar Umræðan Lífeyrir fylgi launum Réttlæti fyrir alla Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Niðurstöður birtar en hvað þýða þær? Ríkislögreglustjóri vill efla hryðjuverkavarnir Tilboðið olli mér miklum vonbrigðum Gefur hernaðaraðgerðum „15 af 10“ í einkunn Mest lesið Í gær Í vikunni Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Niðurstöður birtar en hvað þýða þær? Forsendurnar riða til falls Meiriháttar líkamsárás til rannsóknar Íslendingur vann tæpar tvær milljónir Loftnetin nú endanlega á útleið Leggja til að borgin eigi byggingafélag Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Tólf manna hópur Íslands klár Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Árásin á Íran sögð boðuð í Opinberunarbókinni Fjórir handteknir eftir alvarlega árás Helgafellið vélarvana og dregið til hafnar Umræðan Lífeyrir fylgi launum Réttlæti fyrir alla Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Beint: Sjötti dagur stríðsins í Mið-Austurlöndum Segir Davíð ekki hafa notið sannmælis Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Niðurstöður birtar en hvað þýða þær? Mest lesið Í gær Í vikunni Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Niðurstöður birtar en hvað þýða þær? Forsendurnar riða til falls Meiriháttar líkamsárás til rannsóknar Íslendingur vann tæpar tvær milljónir Loftnetin nú endanlega á útleið Leggja til að borgin eigi byggingafélag Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“

Share this article