Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Stigaleikur Brynjars á Snapchat skilaði þriggja ára dómi

  • What: A man was sentenced to three years in prison for sending explicit content via Snapchat.
  • Impact: Highlights the legal consequences of inappropriate online behavior.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 5.3.2026 | 17:55 Stigaleikur Brynjars á Snapchat skilaði þriggja ára dómi Konan fór inn á Snapchat-reikning fyrrverandi maka síns og sendi þaðan mynd af honum í blóði sínu ásamt ósmekklegum athugasemdum. AFP/Kirill Kudryavtsev Setja bókamerki Landsréttur staðfesti í dag þriggja ára fangelsisdóm yfir Brynjari Joensen Creed í umfangsmiklu máli sem laut að kynferðislegum samskiptum við stúlkubörn meðal annars í gegnum samskiptaforritið Snapchat. Brynjar er á sextugsaldri. Þetta er annar dómurinn sem Brynjar hlýtur á um tveimur árum, en árið 2024 fékk hann sjö ára dóm, einnig fyrir kynferðisbrot gegn ungum stúlkum Ákæruvaldið krafðist þess við meðferð málsins í Landsrétti að refsingin yrði þyngd, en ákærði krafðist sýknu eða mildunar. Landsréttur féllst ekki á kröfu um refsiþyngingu og lét refsingu héraðsdóms standa óbreytta. Sendi sjálfur myndefni líka Brynjar var sakfelldur fyrir kynferðisbrot, kynferðislega áreitni og brot gegn barnaverndarlögum, meðal annars með því að hafa viðhaft kynferðislegt tal og átt í kynferðislegum samskiptum við brotaþola sem voru stúlkubörn. Þá sendi hann sumum þeirra kynferðislegt myndefni og fékk þær til að senda kynferðislegar myndir af sjálfum sér. Hann var einnig sakfelldur fyrir brot gegn lögum um nikótínvörur með því að hafa afhent einum brotaþola rafrettu. Frétt af mbl.is Brynjar dæmdur í þriggja ára fangelsi Bjó til stigaleik fyrir brotaþola Í dómi Landsréttar kemur fram að hluti samskipta Brynjars Joensen Creed við brotaþola á Snapchat hafi farið fram í gegnum svonefndan „stigaleik“. Samkvæmt gögnum málsins kynnti hann leikinn fyrir stúlkum sem hann var í samskiptum við og útskýrði að þær gætu safnað stigum með því að senda honum myndir eða myndbönd af sér. Stigin jukust eftir því sem efnið varð persónulegra eða kynferðislegra. Í samskiptunum bað hann meðal annars um myndir af stúlkunum í nærfötum eða myndir þar sem þær sýndu ákveðna líkamshluta. Í sumum tilvikum hvatti hann þær einnig til að framkvæma tiltekin atriði fyrir framan myndavél. Samkvæmt dóminum gaf hann stigin jafnóðum og stúlkurnar sendu efnið og ræddi við þær um hvernig þær gætu fengið fleiri stig. Bauð gjafir í staðinn Í gögnum málsins kemur fram að sumar stúlkurnar spurðu hvað þær fengju í staðinn fyrir stigin. Samkvæmt framburði brotaþola bauð hann í sumum tilvikum gjafir eða að útvega þeim hluti, til dæmis sælgæti, rafrettur eða kynlífshjálpartæki. Sagðist ekki vita um aldur Varnir ákærða byggðu einkum á því að hann hefði ekki talið brotaþola jafn unga og raun bar vitni og að hann hefði ekki haft ásetning til að eiga í kynferðislegum samskiptum við börn. Landsréttur taldi hins vegar að gögn málsins og framburður brotaþola, meðal annars um að aldur þeirra hefði komið fram í samskiptum og jafnvel í notendanöfnum á Snapchat, leiddu til þess að hann hefði látið sér í léttu rúmi liggja aldur þeirra og haldið samskiptum áfram. Á átjándu milljón í miskabætur Landsréttur staðfesti bótaábyrgð ákærða, en gerði breytingar á miskabótum að hluta og þyngdi bæturnar. Nema þær samtals rúmum 17 milljónum króna til stúlkannna og nema upphæðirnar frá 1-1,5 milljóna króna. Brynjar var jafnframt dæmdur til að greiða allan áfrýjunarkostnað málsins, samtals 4.849.763 krónur. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Knattspyrnustjórinn sviptur ökuréttindunum Ráðist á ungmenni í strætóskýli Akureyringar reyna við Íslandsmeistarann Átta Íslendingar keppa á HM í Narvík Ísland standi frammi fyrir nýjum áskorunum Umræðan Lífeyrir fylgi launum Kjósendur eiga skilið að fá skýr svör um borgarlínu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hækkanir muni hafa veruleg áhrif Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Beint: Enn annað ríki hótar þátttöku í stríðinu Kjarnorkuvetur í kvikmyndabransa Mest lesið Í gær Í vikunni Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Forsendurnar riða til falls Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Íslendingar þurfi að liggja lágt Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Knattspyrnustjórinn sviptur ökuréttindunum Ráðist á ungmenni í strætóskýli Akureyringar reyna við Íslandsmeistarann Átta Íslendingar keppa á HM í Narvík Ísland standi frammi fyrir nýjum áskorunum Umræðan Lífeyrir fylgi launum Kjósendur eiga skilið að fá skýr svör um borgarlínu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Norðmenn pikkfastir í Mið-Austurlöndum Ráðherra vill afnema „neitunarvald“ landeigenda Tilboðið olli mér miklum vonbrigðum Beint: Enn annað ríki hótar þátttöku í stríðinu Mest lesið Í gær Í vikunni Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Forsendurnar riða til falls Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Íslendingar þurfi að liggja lágt Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“

Share this article