Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Skeljar, segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra vera í vonlausri stöðu við stjórn peningamála og líkir honum við „smið án hamars“. „ Staðreyndin er sú að miðlun peningastefnunnar virkar ekki sem skildi á Íslandi meðal annars vegna hinnar séríslensku verðtryggingar,“ segir Jón Ásgeir í nýrri ársskýrslu Skeljar. „Þegar vextir hækka í löndunum í kringum okkur finnur fólk áhrifin strax. Neysluhegðun breytist strax, fólk hættir að kaupa sér kaffibolla fyrir fimm pund vegna þess að afborganirnar af húsnæði hækka strax sem hefur strax áhrif á heimilin. Hér heima dreifast áhrifin yfir langan tíma, oft á tíðum til áratuga. Það þýðir ekki að vextir skipti ekki máli, heldur að þegar vextir hækka á Íslandi finna heimilin minna fyrir því. Kerfið dreifir högginu með verðtryggingunni.“ Jón Ásgeir segir að í ljósi þessa sé seðlabankastjóri í vonlausri stöðu. Ef peningastefnan eigi að virka eins og til sé ætlast verði að endurskoða fyrirkomulag verðtryggingar. Sjá einnig Jón Ásgeir: Evran myndi auka hagsæld í landinu Ummæli Jóns Ásgeirs koma á sama tíma og ríkisstjórnin undirbýr nú aðgerðir til að draga úr vægi verðtryggingar í íslenska hagkerfinu. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra upplýsti í október að stefnt væri að aðgerðum, einkum er varðar lengstu íbúðalánin. Hann sagði verðtrygginguna vera barn síns tíma og að hún hafi neikvæð áhrif á miðlunarferli peningastefnunnar. Fyrir mánuði síðan sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra að stefnt sé að því að fyrstu breytingarnar í átt að afnámi verðtryggingar taki gildi um næstu áramót. Fyrsta skrefið feli í sér að fólk muni þurfa að standa skil á lagmarksafborgunum af láni sínu. Sjá einnig „Afnám verðtryggingar er glapræði“ Einnig hafa þó heyrst gagnrýnisraddir vegna þessara áforma. Sigríður Benediktsdóttir, hagfræðingur og kennari við Columbia háskóla, sagði til að mynda að áform um afnám verðtryggingar væri „glapræði sem mun koma niður á fjölskyldum“. Verðtrygging aðstoði íbúðakaupendur með litlar eignir og lágar tekjur, eins og í tilviki margra fyrstu kaupenda. Jón Ásgeir er ekki eini forsvarsmaður stórs fjárfestingarfélags hér á landi sem hefur gagnrýnt peningastefnu Seðlabankans upp á síðkastið. Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða, furðaði sig í síðasta mánuði á áherslu Seðlabankans á að viðhalda 3-4% raunvaxtastigi í landinu og sagði bankann á „fullkomlega rangri leið“. Sjá einnig Jón: Seðlabankinn á fullkomlega rangri leið Þá hefur Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, gagnrýnt á síðustu misserum vægi verðtryggingarinnar í íslenska hagkerfinu.