Innlent | mbl | 6.3.2026 | 14:05 Með kíló af kókaíni falið í niðursuðudósum Vaknaði grunur tollvarða um að í þremur niðursuðudósum í farangrinum væri eitthvað annað en innihaldslýsing utan á dósunum gaf til kynna. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Tengdar fréttir Fíkniefni á Íslandi Lögreglan varar við fíkniefninu Kratom Ákært fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og peningaþvætti Íslendingar meðal þeirra handteknu Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Leitarhundar sýndu bifreiðinni áhuga » Fleiri tengdar fréttir Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 20 mánaða fangelsi fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnabrots og peningaþvætti. Héraðssaksóknari gaf út ákæru á hendur manninum, Okey Emmanuel Ojidelu, í júlí í fyrra. Ákæran er í tveimur liðum. Í þeim fyrri var hann ákærður fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að hafa sunnudaginn 24. mars 2024 við Hótel Frón að Laugavegi í Reykjavík reynt að taka við 994,57 grömmum af kókaíni með 83% styrkleika sem var ætlað til dreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Ojidelu tók við farangurstösku af konu sem hann taldi að í væru framangreind ávana-og fíkniefni. Lögreglan hafði áður lagt hald á efnin og fjarlægt þau úr farangurstöskunni sem konan kom með til landsins þá um nóttina sem farþegi með flugi frá Varsjá í Póllandi til Keflavíkurflugvallar. Voru efnin falin í niðursuðudósum. Þá var hann ákærður fyrir peningaþvætti með því að hafa á tímabilinu 1. janúar 2023 til 24. mars 2024 tekið við og aflað sér ávinnings af sölu og dreifingu ávana-og fíkniefna og eftir atvikum af öðrum refsiverðum brotum, að lágmarki að fjárhæð 1.740.000 krónur. Fjármunina geymdi Ojidelu í formi reiðufjár á þáverandi heimili sínu þar til lögregla lagði hald á þá við húsleit á heimilinu. Maðurinn neitaði sök í málinu. Konan kom til landsins frá Póllandi. mbl.is/Karítas Kvaðst vera ferðamaður Í dómi héraðsdóms, sem féll 4. mars, eru málsatvik rakin. Þar segir að þann 24. mars 2023 hafi fyrrnefnd kona komið til landsins með flugi frá Varsjá í Póllandi og lent skömmu eftir miðnætti aðfaranótt þess dags. Í samtali við tollverði kvaðst hún vera ferðamaður og hygðist hitta vin sinn. Við skoðun á farangri hennar kom í ljós mikið af matvöru sem hún sagði vera fyrir vin sinn. Vaknaði grunur tollvarða um að í þremur niðursuðudósum í farangrinum væri eitthvað annað en innihaldslýsing utan á dósunum gaf til kynna. Plastpakkningar í felum Voru allar þrjár dósirnar opnaðar og í tveimur þeirra kom þá í ljós þunnt lag af einhvers konar mauki eða kæfu en þar undir voru plastpakkningar. Alls vógu dósirnar, með plastpakkningunum, 1.807 grömm. Tekin var fíkniefnastroka af konunni og farangri hennar og kom fram jákvæð svörun við kókaíni. Samkvæmt efnaskýrslu lögreglu reyndist vera kókaín í plastpakkningunum, alls 994,57 grömm. Samkvæmt matsgerð Rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði voru til rannsóknar tvö sýni af téðu kókaíni og reyndist styrkleiki beggja sýna vera 83% sem er í matsgerðinni sagt samsvara 93% af kókaínklóríði. Samkvæmt efnaskýrslu lögreglu reyndist vera kókaín í plastpakkningunum, alls 994,57 grömm. mbl.is/Hari Sagðist ekkert kannast við að kókaínið Héraðsdómur segir í niðurstöðukafla dómsins að eina ágreiningsefnið hvað varðar fyrri lið ákæru varði það hvort Ojidelu vissi eða mátti vita að í töskunni hafi átt að vera kókaín, þ.e. hvort hann hafði ásetning til að taka við tösku sem í var téð kókaín sem ætlað var til dreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Ojidelu sagðist ekki kannast við að hafa vitað um að kókaín ætti að vera í umræddri tösku. Hann hélt sig við að hafa aðeins gert ráð fyrir því að í töskunni væri matvara, sem að mestu leyti hefði verið ætluð honum, en að tvær til þrjár niðursuðudósir væru ætlaðar öðrum manni, sem hann vissi þó ekki hver væri. Í framburði hans kom einnig fram að hann héldi að í dósunum hefðu átt að vera tómatar en svo reyndist ekki vera. Allur framburður ótrúverðugur Héraðsdómur segir að ekki verði ráðið af innihaldi, umbúðum og merkingum á dósunum að þær hafi upprunalega verið undan tómötum. „Að mati dómsins er allur framburður ákærða um að hann hafi ekkert vitað um kókaín og innflutning þess afar ótrúverðugur,“ segir héraðsdómur. Þá sagði Ojidelu að hann hefði aldrei hitt konuna áður og að þau hefðu aðeins rétt heilsast þegar hann tók við töskunni. Héraðsdómur segir að þetta sé ekki í samræmi við upptöku af fundi þeirra en þar sést að þau tala saman í rúmar 20 sekúndur áður en leiðir þeirra skilja. Þá kom fram í framburði konunnar og lögreglumanns sem gaf skýrslu fyrir dómi að þau hefðu faðmast við þetta tækifæri. Þá er tekið fram að á heimili Ojidelu hafi nokkrir farsímar fundist. Í þeim hafi verið að finna skilaboð sem fjalla augljóslega um kókaín, þ.m.t. um afhendingu og dreifingu þess. Á þessu hefur maðurinn ekki haft neinar skýringar, þrátt fyrir að lagt hafi verið hald á símana á heimili hans. Héraðsdómur segir að allur framburður mannsins um tildrög þess og framkvæmd á því að einhver vinur hans í útlöndum hafi verið að senda honum afrísk matvæli vegna þess að matur sé svo dýr á Íslandi sé ótrúverðugur. Ljósmynd/Colourbox Matvælasending frá Afríku „Þá er ótrúverðugur allur framburður ákærða um tildrög þess og framkvæmd á því að einhver vinur hans í útlöndum hafi verið að senda honum afrísk matvæli vegna þess að matur sé svo dýr á Íslandi. Vissulega voru notaðar matarumbúðir, þ.e. niðursuðudósir, undir kókaínið en að móttaka ákærða á ferðatöskunni hafi aðeins verið vegna matvæla er ótrúverðugt. Ekki síst þegar litið er til þess hvernig framkvæmdinni var háttað, þ.e. að hittast úti á götu og án þess að ákærði væri sjálfur í sambandi við þann aðila sem kom með og afhenti honum töskuna. Ef frásögn ákærða væri rétt, þ.e. um að hann hafi aðeins átt von á matvælum, þá er ljóst að framkvæmdin á þessu var ljóslega til þess fallin að vekja grunsemdir um að annað og meira lægi undir en aðeins innflutningur á afrískum matvælum. Að öllu framangreindu virtu er hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem lýst er í fyrri lið ákæru og er háttsemin réttilega heimfærð til refsiákvæða,“ segir í dómnum. Hvað varðar seinni lið ákærunnar sem snýr að peningaþvætti segir héraðsdómur að þá sé um að ræða þá fjármuni sem lagt var hald á við húsleit á heimili mannsins. Eftiráskýringar Héraðsdómur segir að um sé að ræða fjárhæð sem sé í verulegu ósamræmi við uppgefnar tekjur Ojidelu. Hann hefur lýst því að um sé að ræða laun fyrir svokallaða svarta vinnu. Hins vegar hefur hann ekki viljað gera neina grein fyrir því hvar hann var að vinna þá svörtu vinnu sem hann kveðst hafa unnið. „Eru skýringar hans á því ótrúverðugar. Er raunar allur framburður hans um þetta með ósannindablæ og ber merki eftiráskýringa,“ segir héraðsdómur. Dómstóllinn gerði upphæðina, sem var að finna á höfuðstóli Ojidelu, upptæka. Þá var hann dæmdur til að greiða fimm milljónir kr. í sakarkostnað. Tengdar fréttir Fíkniefni á Íslandi Lögreglan varar við fíkniefninu Kratom Ákært fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og peningaþvætti Íslendingar meðal þeirra handteknu Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Leitarhundar sýndu bifreiðinni áhuga » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sætustu mæðgur landsins létu spreyja á sig TVG-Zimsen kaupir Cargo Express Segja Ísraelsmönnum að rýma svæði við landamærin Vara við eldingum í dag en ekki á morgun Frá Ítalíu á Akranes Umræðan Lífeyrir fylgi launum Sögulegt fleipur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Snjókoma og hvassviðri í kortunum Líklega leggst skólahald af Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi „Ekki hægt að „vippa upp 90 daga neyðarbirgðum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Aldrei gerst að dögum sé bætt við Andlát: Árni Árnason Andlát: Eysteinn Helgason „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Tölvupósturinn var ekki mistök Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ Íslenska mest töff tungumál í heimi Veðurstofan varar við tíðum eldingum Ríkisstjórnin kynnir ESB-tillöguna Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingar þurfi að liggja lágt Fjöldi lögreglubíla við umferðareftirlit Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Nýjast á mbl.is » Sætustu mæðgur landsins létu spreyja á sig TVG-Zimsen kaupir Cargo Express Segja Ísraelsmönnum að rýma svæði við landamærin Vara við eldingum í dag en ekki á morgun Frá Ítalíu á Akranes Umræðan Lífeyrir fylgi launum Sögulegt fleipur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Með kíló af kókaíni falið í niðursuðudósum Snjókoma og hvassviðri í kortunum Boða þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst NATO: Tyrkland var skotmarkið Mest lesið Í gær Í vikunni Aldrei gerst að dögum sé bætt við Andlát: Árni Árnason Andlát: Eysteinn Helgason „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Tölvupósturinn var ekki mistök Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ Íslenska mest töff tungumál í heimi Veðurstofan varar við tíðum eldingum Ríkisstjórnin kynnir ESB-tillöguna Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Ekið á gangandi vegfaranda eftir árekstur Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingar þurfi að liggja l