Veðurstofan segir að búast megi við tíðum eldingum á Suðurlandi í dag og fram á kvöld. Þessi mynd var tekin í þrumuveðri í Reykhólasveit í fyrra.Mynd / Laurutis Kipras Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun vegna þrumuveðurs með tíðum eldingum á Suðurlandi. Hún hefur nú þegar tekið gildi. „Forðast ber vatn, hæðir í landslagi og berangur. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám,“ segir á vef Veðurstofunnar. Þar er fólki einnig bent á að nánari upplýsingar um viðbrögð við eldingaveðri megi finna á upplýsingasíðu Almannavarna . Viðvörunin gildir fram á kvöld.