Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tveir handteknir grunaðir um stórfellda líkamsárás

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 22 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tveir hand­tekn­ir grun­að­ir um stór­fellda lík­ams­árás Markús Þ. Þórhallsson Tveir menn voru handteknir í miðborg Reykjavíkur grunaðir um stórfellda líkamsárás og vörslu fíkniefna. Lögreglukonur að störfum í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni. RÚV Málið er í rannsókn að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögregla rannsakar einnig líkamsárás sem gerð var í úthverfi sem sögð er hafa verið minni háttar. Nokkuð eignatjón varð þegar flugeldum var skotið inn um rúðu á hóteli í miðborginni. Fjórir gistu fangageymslur lögreglunnar í morgun. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Flug­um­ferð úr skorð­um á Kefla­vík­ur­flug­velli vegna veðurs Markús Þ. Þórhallsson Illviðrið sem gengur yfir hefur áhrif á flugsamgöngur á Keflavíkurflugvelli. Samkvæmt upplýsingum aðalvarðstjóra í flugstjórnarmiðstöð er mjög hvasst og gengur á með sterkum hviðum. Þota Icelandair kemur inn til lendingar á Akureyrarflugvelli fyrir nokkru þegar illviðri sett strik í ferðir um Keflavíkurflugvöll. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Brottför Icelandair til Prag sem átti að vera klukkan 7:20 hefur verið frestað til klukkan ellefu og ferðum til Amsterdam, Parísar og Helsinki á áttunda tímanum aflýst. Nokkrar brottfarir á þeim tíma virðast enn á áætlun samkvæmt vef Isavia en mörgum brottförum og áætluðum lendingum hefur verið frestað um nokkra klukkutíma fram eftir morgni. Allt innanlandsflug er samkvæmt áætlun og einnig brottfarir og komur til Akureyrar erlendis frá. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Rússar gerðu eld­flauga­árás­ir á Kyiv og Kharkiv í nótt Markús Þ. Þórhallsson Íbúar úkraínsku höfuðborgarinnar Kyiv voru í nótt beðnir að halda sig í loftvarnarbyrgjum vegna eldflaugaárása Rússlandshers. Slökkvilið að störfum eftir loftárás á Kyiv 22. febrúar síðastliðinn. AP / Sergei Grits Rússar hafa einnig gert dróna- og eldflaugaárásir á Kharkiv, næststærstu borg landsins, þar sem björgunarsveitir leita fólks undir rústum háhýsis. Yfirvöld þar segja atlögur einnig hafa beinst að Kyiv-hverfinu í borginni sem samanstendur af íbúðabyggð, iðnaðarsvæðum og menntastofnunum. Að minnsta kosti sjö hafa særst í atlögunum, þar á meðal ellefu ára drengur. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Flug­vél­ar standa í björtu báli á al­þjóða­flug­vell­in­um við Te­her­an Vika er liðin í dag síðan Bandaríkin og Ísrael hófu hernað gegn Íran. Hvað hefur gerst síðasta sólarhring? Ísraelsmenn gerðu þunga árás á Mehrabad-alþjóðaflugvöllinn við Teheran í nótt þar sem flugvélar standa í björtu báli. Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir leyniþjónustu Bandaríkjanna og forseta vita nákvæmlega hverjir segi hvað við hvern og því sé hann lítt uggandi yfir orðrómi um að Rússar veiti Írönum leynilegar upplýsingar. Aðstoðarutanríkisráðherra Írans varar Evrópuríki við að blanda sér í árásir á landið. Þau sem slíkt geri verði lögmæt skotmörk Íranshers. Sprengingar hafa kveðið við í Teheran. Sendiherra Írans hjá Sameinuðu þjóðunum segir 1.332 almenna borgara hafa verið drepna síðan á laugardaginn var. Þrír friðargæsluliðar frá Gana særðust alvarlega í loftárás Ísraels sunnanvert í Líbanon í gærkvöld. Ísraelsk stjórnvöld vöruðu landsmenn við eldflaugaárásum frá Íran. Ekki hafa borist tíðindi af manntjóni í kvöld og nótt. Fjöldi fólks er á vergangi í Líbanon. Skólum hefur verið breytt í neyðarskýli. FRÉTTAVAKT Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Nýbirt skjöl sýna ásak­an­ir um kyn­ferð­is­brot af hálfu Don­alds Trump — fá­sinna segir Hvíta húsið Skjöl sem bandaríska dómsmálaráðuneytið birti í vikunni sýna að ónafngreind kona sakaði Donald Trump um að hafa neytt sig til munnmaka. Það hafi verið á 9. áratugnum þegar hún var unglingur. Hvíta húsið segir ásakanirnar alveg tilhæfulausar. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Heg­seth kveðst lítt ugg­andi yfir orð­rómi um að Rússar veiti Írönum leyni­leg­ar upp­lýs­ing­ar Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir leyniþjónustu Bandaríkjanna og forseta vita nákvæmlega hverjir segi hvað við hvern og því sé hann lítt uggandi yfir orðrómi um að Rússar veiti Írönum leynilegar upplýsingar. Brugðist verði við óæskilegri hegðun. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Indónesía Börnum undir sextán ára aldri verður bannað að nota sam­fé­lags­miðla Markús Þ. Þórhallsson Stjórnvöld í Indónesíu hafa ákveðið að banna að börn undir sextán ára aldri fái aðgang að samfélagsmiðlum. Indónesískum börnum verður bannað að nota miðla á borð við Faceboook og Instagram. EPA Samkvæmt tilkynningu fjarskiptaráðuneytisins verða reikningar barna gerðir óvirkir frá og með 28. mars. Bannið nær meðal annars til miðlanna Instagram, YouTube, Tik Tok, Facebook og X og er ætlað að vernda börn og ungt fólk fyrir einelti, svikastarfsemi, netfíkn og klámi. Þrír mánuðir eru síðan Ástralía reið á vaðið með að banna börnum yngri en sextán ára að nota samfélagsmiðla. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar vara Evr­ópu­ríki við að blanda sér í ófrið­inn Aðstoðarutanríkisráðherra Írans varar Evrópuríki við að blanda sér í árásir á landið. Þau sem slíkt geri verði lögmæt skotmörk Íranshers. Ísraelsher heldur uppteknum hætti við árásir á Íran. Rússlandsforseti vottaði Íransforseta samúð í kvöld. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Gular við­var­an­ir fyrir stóran hluta lands­ins í nótt og fram eftir degi Veðurstofan varar við hvassviðri, stormi eða roki með éljagangi um stóran hluta landsins í nótt og fram eftir degi. Fyrstu gulu viðvaranirnar taka gildi á Suðurlandi og miðhálendi en færast vestur og norður um landið eftir því sem líður á nóttina. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Frið­ar­gæslu­lið­ar Sam­ein­uðu þjóð­anna særðir í Líban­on Herstöð friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna í Líbanon varð fyrir flugskeytaárás í kvöld. Tveir friðargæsluliðar eru alvarlega særðir og í lífshættu. Frakklandsforseti fordæmir árásina sem forseti Líbanon sakar Ísraela um. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísra­els­menn og Banda­ríkja­menn segja hern­að­inn kominn á annað stig Ísraelsk stjórnvöld segjast hafa fært stríðsrekstur gegn Íran upp á annað stig. Yfirvöld í Íran segja yfir þúsund hafa verið drepin í árásum þar. Hallgrímur Indriðason talaði um stöðu stríðsins í Mið-Austurlöndum í sjónvarpsfréttum í kvöld. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Sjáv­ar­út­veg­ur lík­leg­asti ágrein­ing­ur­inn í mögu­leg­um að­ild­ar­við­ræð­um Ís­lands við ESB Sérfræðingur um stækkunarmál ESB segir að aðildarferli Íslands gæti gengið hratt ef viðræður hæfust á ný. Hún segir sjávarútveg líklegasta ágreiningsmálið. Staða Evrópu hafi tekið verulegum breytingum síðustu ár. 6. mars 2026 kl. 20:28INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Krist­inn skákar sitj­andi odd­vita og leiðir Pírata í Reykja­vík Niðurstöður prófkjörs Pírata í Reykjavík liggja fyrir. Kristinn Jón Ólafsson, fyrsti varaborgarfulltrúi Pírata, er nýkjörinn oddviti flokksins. 230 atkvæði voru greidd í prófkjörinu. 6. mars 2026 kl. 19:02INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borg­ar­full­trú­ar Sjálf­stæð­is­flokks­ins ganga til liðs við Mið­flokk­inn Marta Guðjónsdóttir og Kjartan Magnússon, borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins um árabil, hafa fært sig yfir í Miðflokkinn. Þau segja andstöðu þeirra við Borgarlínu ástæðu þess að þeim hafi verið skipt út. 6. mars 2026 kl. 18:11INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Áfengistengd­um inn­lögn­um fjölg­aði um 88% á 17 árum Áfengistengdar innlagnir á Landspítala frá 2005 til 2022 voru 1.779. Um 30% voru lagðir inn oftar en einu sinni og um 100 létust í legu. Höfundar nýrrar rannsóknar vara við aukinni vanheilsu af völdum áfengis verði aðgengi almennings að því aukið. 6. mars 2026 kl. 17:27INNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Orku­veit­an hagn­ast milli ára þrátt fyrir sam­drátt Orkuveitan tilkynnir 11,5 milljarða króna hagnað í rekstri sínum 2025. Ársreikningurinn var samþykktur af stjórninni í dag. Leggja til að 4,5 milljarðar verði greiddir í arð vegna ársins. 6. mars 2026 kl. 17:18INNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Ætlaði að að­stoða öku­mann þegar árekst­ur­inn varð Maður slasaðist alvarlega þegar hann lenti á milli bíla í þriggja bíla árekstri á Kringlumýrarbraut í gærkvöld. Lögreglan segir manninn hafa ætlað að aðstoða ökumann sem missti stjórn á bílnum sínum og ók á vegrið. 6. mars 2026 kl. 16:51INNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Raf­magns- og heita­vatn­s­trufl­an­ir vegna eld­inga 6. mars 2026 kl. 16:36ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Telja lík­legt að Banda­ríkja­her beri ábyrgð á loft­árás á ír­ansk­an stúlkna­skóla Rannsakendur á vegum Bandaríkjahers telja líklegt að herinn beri ábyrgð á loftárás á íranskan stúlknaskóla um helgina. Yfirvöld í Íran segja að yfir 160 hafi verið drepin í árásinni, þar af 150 nemendur. 6. mars 2026 kl. 16:31ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin At­vinnu­leysi eykst óvænt í Banda­ríkj­un­um Störfum í Bandaríkjunum fækkaði um 92 þúsund í síðasta mánuði. Atvinnuleysi eykst á milli mánaða, þvert á spár sérfræðinga. 6. mars 2026 kl. 15:49INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Ölfus Raf­magns­laust í Þor­láks­höfn eftir að eld­ingu laust niður Rafmagnslaust er í Þorlákshöfn vegna eldingar sem sló niður. Mannskapur frá bæði Rarik og Landsneti vinnur að því að greina vandann. Ekki er hægt að segja til um hvenær rafmagn kemst aftur á. 6. mars 2026 kl. 15:43INNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Tekist á um vitna­leiðsl­ur í máli Mar­grét­ar Frið­riks­dótt­ur Tekist var á í máli Margrétar Friðriksdóttur fyrir héraðsdómi í dag við upphaf endurflutnings málsins. Ákveða þarf hvort kalla eigi dómara aftur sem vitni í málinu. 6. mars 2026 kl. 15:25MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Fimm flipp­uð og alls konar á föstu­degi Það er allt í rugli þennan föstudag og lagavalið endurspeglar það, þar sem Aldous Harding, José González, Mitski, Angèle ásamt Justice og The Skinner Brothers bjóða upp á ferskt nýmeti. 6. mars

Share this article