Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 19 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Vesturlandsvegur lokaður vegna umferðarslyss við Laxárbakka Andri Yrkill Valsson Vesturlandsvegi var lokað á öðrum tímanum vegna umferðarslyss við Laxárbakka, Vogatungu í Leirársveit. Samkvæmt fyrstu tilkynningu Vegagerðarinnar var ekki búist við langri lokun, en nú segir að hún vari að minnsta kosti til klukkan 14.30. „ Ekki er ráðlegt að aka vegi 504 og 502 , því þetta eru sveitarvegir sem eru ekki í vetrarþjónustu og einbreiðir á köflum,“ segir í tilkynningu á umferdin.is. Skjáskot / Vegagerðin. Fyrir 9 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Vesturland Fjórir á sjúkrahús eftir árekstur á Vesturlandsvegi Tveir bílar rákust saman á Vesturlandsvegi eftir hádegi í dag. Fjórir voru fluttir með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Upplýsingar um líðan þeirra liggja ekki fyrir en lögreglan segir alla hafa verið með meðvitund á vettvangi. Fyrir 42 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Skoða möguleg viðbrögð vegna grásleppunnar Talsmaður landssambands grásleppuútgerða er afar ósáttur við afnám kvótasetningar á grásleppu. Sambandið sé að greina hvernig best sé að bregðast við. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Stjórnvöld ættu að hafa alvarlegar áhyggjur af hlutabréfamarkaðnum Lágt gengi hlutabréfa Icelandair er áhyggjuefni fyrir stöðuna á íslenskum hlutabréfamarkaði, segir hagfræðingur. Áhættufælnir fjárfestar eigi meirihluta markaðarins. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál „Eina leiðin er upp á við“ Nýr formaður VG segir mikilvægt að flokkurinn fylli tómarúm á vinstri væng íslenskra stjórnmála. Helsta verkefnið fram undan sé að undirbúa framboð til komandi sveitarstjórnarkosninga. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Formúla 1 Russel sigraði í fyrsta kappakstri ársins eftir mistök hjá Ferrari Hans Steinar Bjarnason Fyrsta keppni nýs tímabils í Formúlu-1 kappakstrinum fór fram í Ástralíu í nótt. Breski ökuþórinn George Russell hjá Mercedes sigraði nokkuð örugglega en dýrkeypt mistök kostuðu Ferrari-manninn Charles Leclerc sigurinn. George Russell á verðlaunapallinum í Melbourne í dag. EPA / JOEL CARRETT Þeir Russell voru í harðri baráttu fyrstu tíu hringina en Ferrari-liðið ákvað að stoppa ekki þegar öryggisbíll þurfti að koma inn á braut. Mercedes liðið nýtti tækifærið og skipti um dekk. Ferrari tók forystuna á meðan en missti hana þegar það ákvað svo loks að skipta um dekk og Mercedes-mennirnir Russel og Kimi Antonelli hirtu efstu tvö sætin. Heimsmeistarinn Lando Norris varð fimmti. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Ein tilgáta að sprengingin við sendiráðið hafi verið hryðjuverk Enginn er í haldi norsku lögreglunnar eftir sprengingu við bandaríska sendiráðið í Ósló í nótt. Eitt af því sem er til rannsóknar er hvort sprengingin tengist hryðjuverkum, en fleiri tilgátur eru inni í myndinni. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Bjarki Hjörleifsson kjörinn varaformaður VG Hugrún Hannesdóttir Diego Bjarki Hjörleifsson. Aðsend / Vinstri hreyfingin – grænt framboð Bjarki Hjörleifsson var kjörinn varaformaður VG á landsfundi flokksins á Selfossi í dag. Hann fékk 99% atkvæða. Rósa Björk Brynjólfsdóttir var kjörin formaður. Fráfarandi formaður og varaformaður eru Svandís Svavarsdóttir og Guðmundur Ingi Guðbrandsson. Þau gáfu hvorug kost á sér áfram. Bjarki er stjórnmálafræðingur og var aðstoðarmaður Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur þegar hún gegndi embætti matvælaráðherra. Þar á undan starfaði hann fyrir þingflokk VG. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Rósa Björk er nýr formaður Vinstri grænna Rósa Björk Brynjólfsdóttir var kjörin nýr formaður Vinstri grænna á landsfundi flokksins á Selfossi í dag. Svandís Svavarsdóttir gaf ekki kost á sér áfram. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúra Dauðum lunda skolar á land í þúsundatali Undanfarnar vikur hefur dauðan lunda rekið á land í þúsundatali á ströndum Evrópu. Fuglarnir drepast í stormum á hafi úti. Líffræðingur telur líkur á afföllum í íslenska varpstofninum. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Sá mannshönd fálma upp á gluggann Frækileg björgun á fimmta tugar hermanna á Eskifjarðarheiði 1942 fór ekki hátt. Það var ekki fyrr en einn þeirra sem kom að björguninni sagði breskum sjúkraþjálfara frá þrekvirkinu tæpum 40 árum síðar sem fréttin barst til breskra fjölmiðla. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Vara við þungri vetrarfærð Andri Yrkill Valsson Vegagerðin bendir vegfarendum á að vetrarfærð er á landinu mest öllu og að hún getur verið þung. Þrátt fyrir minni vind í dag en í gær, heldur áfram að snjóa drjúgt í éljum sem getur viðhaldið erfiðum akstursskilyrðum. Er fólk hvatt til að kynna sér skilyrðin vel fyrir ferðalög. Siglufjarðarvegur um Almenninga er lokaður eftir snjóflóð í gær, og ólíklegt að Dynjandisheiði á Vestfjörðum verði opnuð fyrr en á morgun. Vetrarfærð er á vegum víðast hvar. Aðsent / Pálmi Pétursson Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Skólakór Kársness í 50 ár: „Það eru bara allir sigurvegarar“ Hundruð núverandi og fyrrum kórfélaga í Skólakór Kársness komu fram á 50 ára afmælistónleikum í Salnum í Kópavogi. Margir tónlistarmenn hafa byrjað ferilinn í kórnum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Vaxandi vindur og éljagangur í dag Búast má við éljagangi víða um land í dag, fyrst á sunnanverðu landinu og svo áfram til norðausturs. Seint í kvöld dregur úr vindi en á morgun er von á nýrri lægð með vaxandi vindi, snjókomu eða slyddu. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Maður þarf að vera svolítið öruggur í sínu til að geta gert þetta“ Eva María hefur alltaf haft bein í nefinu sem nýtist henni vel í starfi. Þegar hún var fimmtán ára ákvað hún að flytja ein frá móður sinni á Ítalíu aftur til Íslands og spilaði þar viðhorf samfélagsins í Napólí til kvenna og samkynhneigðra inn í. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Í dag: Ísland sækir Svartfjallaland heim eftir sigurinn óvænta Ísland heimsækir Svartfjallaland í undankeppni EM kvenna í handbolta í dag. Svartfellingar eru á toppi riðilsins og töpuðu óvænt á Íslandi í vikunni. Arnar Pétursson landsliðsþjálfari segir forföll í íslenska liðinu orðin „fullmikið af því góða“. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Samfélag Þeim sem starfa við menningu og skapandi greinar fækkað um fimmtung á einum áratug Um sex af hverjum hundrað landsmönnum starfa við skapandi greinar og menningartengda starfsemi. Þeim sem slíkt stunda hefur fækkað um nærri 20 af hundraði á einum áratug. Langflestir úr hópnum hafa menningu og sköpun að aðalstarfi. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Líkamsárás og mundun eggvopna til rannsóknar — tíu gista fangageymslur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir annasamt kvöld og nótt að baki. Rannsókn stendur yfir á líkamsárás sem gerð var í Hafnarfirði og þar í bæ voru tveir handteknir fyrir aðra slíka. Tveir menn veifuðu eggvopnum og voru handteknir. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Herjað á olíubirgðastöðvar í Teheran – Ísraelar hóta því að fella arftaka Khameneis Íranski byltingarvörðurinn segir heri landsins geta barist hatrammlega við Ísraela og Bandaríkjamenn næsta hálfa árið hið minnsta. Loftárásir með drónum og eldflaugum hafa verið gerðar á Kúveit, Sádi Arabíu og Katar í nótt. Fjöldi dróna og eldflauga hefur verið skotinn niður. Bandaríkjaforseti vill ekki að Kúrdar blandi sér í stríðið. Að minnsta kosti fjórir voru drepnir og tíu særðust þegar ísraelsk eldflaug hæfði Ramada-hótelið í Beirút, höfuðborg Líbanon. Yfirvöld þar segja nær 300 hafa verið drepnar í árásum Ísraela síðastliðna viku. Sérstakur erindreki Bandaríkjastjórnar í Mið-Austurlöndum, segir Rússa hafa stranglega verið beðna um að veita Írönum ekki upplýsingar sem gætu gagnast þeim í stríðinu. Bandaríkjaforseti hótaði því í gær að herða árásir á Íran. Sprengjum var varpað á fimm olíubirgðastöðvar í nótt. Fulltrúi í sérfræðingaráði Írans segir liggja fyrir hver tekur við stjórnartaumunum í landinu en ráðið hefur ekki tilkynnt hver það er. Ísraelar hafa hótað því að að ganga á milli bols og höfuðs á arftakanum og öllum þeim sem taka þátt í að tilnefna hann. FRÉTTAVAKT 8. mars 2026 kl. 4:30ERLENDAR FRÉTTIR Deilur og stríð Úkraínuforseti segir rússneska íhluti í írönskum drónum notuðum gegn Arabaríkjum og Bandaríkjaher Úkraínuforseti segir Rússa og Írana vinna saman af kappi. Rússneskir íhlutir hafa fundist í braki íranskra árásardróna sem beitt hefur verið gegn Bandaríkjaher og nokkrum Arabaríkjum. Brýnt sé að auka og samhæfa alþjóðlegar varnir. 8. mars 2026 kl. 3:30ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Minnst fjórir drepnir í eldflaugaárás á hótel í vinsælu ferðamannahverfi Beirútborgar Ísraelsk eldflaug hæfði hótelherbergi í strandhóteli í Beirút með þeim afleiðingum að minnst fjórir týndu lífi og tíu særðust. Ísraelsher segir atlöguna hafa beinst að liðsforingjum íranska byltingarvarðarins sem undirbjuggu árás á Ísrael. 8. mars 2026 kl. 2:45ERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Kúbuforseti segir nýtt bandalag Ameríkuríkja einkennast af nýlenduhyggju Kúbuforseti segir nýtt bandalag Ameríku byggja á nýlenduhyggju. Það hefði orðið til á fundi íhaldssamra hægrisinna sem vilja beita hervaldi til að leysa vandamál. Bandaríkjaforseti hefur sagt stjórnina á Kúbu í andarslitrunum. 8. mars 2026 kl. 1:37INNLENDAR FRÉTTIR Veður Hálka víða á höfuðborgarsvæðinu og annars staðar á landinu Markús Þ. Þórhallsson Víða er hált á höfuðborgarsvæðinu. RÚV / Þorgils Jónsson Hálka er víða á höfuðborgarsvæðinu að því er segir á vef Vegagerðarinnar. Einnig er hált á Hellisheiði, Þrengslum, Mosfellsheiði, Kjósarskarðsvegi og í Hvalfirði. Hálka og hálkublettir eru á flestum vegum landsins. Dynjandisheiði verður lokuð vegna veðurs fram á mánudag og Siglufjarðarvegur um Almenninga er lokaður vegna snjóflóðs. Ófært er um Öxi og Breiðdalsheiði, snjóþekja á Lyngdalsheiði og Landvegur er lokaður vegna vatnavaxta milli gatnamóta við Ísakot og Þjórsárdalsveg. 8