Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Nauðsynlegt að bregðast við óvissu um framtíð Kristnesspítala

Read Full Article →

Sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar vill bregðast við þeirri óvissu sem myndast hefur um framtíð starfsemi Kristnesspítala. Þar rekur Sjúkrahúsið á Akureyri endurhæfingar- og öldrunarlækningadeild. Óvissuna má rekja til viðhalds- og innviðavanda sem safnast hefur upp til lengri tíma og byrjað hefur að grafa undan kjarnastarfsemi spítalans. Í byrjun marsmánaðar greindist mygla í húsnæði spítalans, en mygluvandinn hefur varpað ljósi á uppsafnaðan innviðavanda. „Nú síðast hafa komið fram upplýsingar um að mygla hafi greinst í húsnæði á Kristnesi. Slík staða vekur eðlilega áhyggjur, bæði með tilliti til heilsu starfsfólks og sjúklinga og ekki síður um það hvort viðhalds- og innviðavandi, sem safnast hefur upp yfir langan tíma, sé farinn að grafa undan sjálfri kjarnastarfseminni,“ segir Finnur Yngvi Kristinsson sveitarstjóri í tilkynningu á vef sveitarfélagsins. Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar telur áskoranir tengjast að stórum hluta viðhaldi og ástandi fasteigna frekar en faglegum forsendum heilbrigðisþjónustunnar sjálfrar. Þá hafi lengi verið þörf fyrir uppbyggingu á mikilvægum innviðum spítalans, til að mynda viðhald eldra húsnæðis, endurnýjun fráveitu og vatnsveitu og viðgerðir á ytra byrði bygginga. Þau verkefni falli hins vegar utan sérþekkingar heilbrigðisstarfsfólks og framkvæmdastjórnar SAk. Vilja uppbyggingu í samráði við ríkið Í tilkynningunni segir að þrátt fyrir að Sjúkrahúsið á Akureyri beri ábyrgð á heilbrigðisþjónustu innan sveitarfélagsins sé það hlutverk ríkisins að sinna áskorunum sem snúi að fasteignum og innviðum. Það kalli á stefnumótandi ákvarðanir sem stuðli að því að tryggja fjármagn og móta framtíðarsýn um hvernig best sé að haga eignarhaldi og umsýslu húsnæðis. Í því skyni lýsir Eyjafjarðasveit sig reiðubúna til samtals við ríkið um lausnir í innviða- og fasteignamálum Kristnesspítala til að hægt sé að tryggja bæði langtímahugsun og stöðugleika sem séu grundvallarforsendur endurhæfingar og áframhaldandi gæða heilbrigðisþjónustu fyrir íbúa Norðurlands.

Share this article