Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Alltof margir fengið rangar rukkanir

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 8.3.2026 | 22:55 Alltof margir fengið rangar rukkanir Álagning kílómetragjalds á ökutæki sem hófst um átamótin hefur ekki gengið slysalaust fyrir sig, að sögn Runólfs. Samsett mynd/mbl.is/Eggert/Árni Sæberg Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Kílómetragjald Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Útreikningar á kílómetragjaldi út úr kú Rangt mat ráðuneytisins Sveitirnar krafðar um kílómetragjald að ósekju Byggja tugmilljóna reikning ekki á raunakstri » Fleiri tengdar fréttir Allt of mörg tilvik eru um rangar rukkanir vegna kílómetragjaldsins sem tekið var upp um sl. áramót og segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, að Skatturinn hafi viðurkennt að tæknilegir gallar séu í kerfunum sem unnið er eftir við álagningu gjaldsins. „Framkvæmdin er upp í loft,“ segir Runólfur, „en þeir telja sig vera að komast fyrir vind, ef svo má að orði komast,“ segir hann. Runólfur segir að álagning kílómetragjaldsins hafi komið illa við marga og þótt fólk fái ranga álagningu leiðrétta eftir á geti hún haft veruleg fjárútlát í för með sér á þeim tímapunkti þegar greiða þarf hið ofrukkaða gjald. Frétt af mbl.is Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Verulegir hnökrar „Framkvæmdin er ófullnægjandi. Síðasta innheimta, sem var innheimta númer tvö á þessu ári, var með verulegum hnökrum. Forvígismenn Skattsins hafa reynt að fullvissa okkur um að þeir séu að ná tökum á þessu, en það er auðvitað allt of seint. Þetta á að vera klárt þegar menn fara í svona grundvallarbreytingu á skattkerfinu, en þá þarf kerfið að vera klárt og ekki einhverjar hindranir á leiðinni. Það er gjörsamlega óþolandi,“ segir Runólfur. Hann segir að markmiðið hljóti að vera að fá almenning til að sætta sig við kerfisbreytinguna og því eigi kerfin að vera tilbúin þegar innheimtan hefst, en ekki að nota íslensku aðferðina „þetta reddast“ og vera enn að þróa kerfin eftir að innheimta er hafin. Slíkt dragi úr tiltrú almennings á kerfinu. Runólfur segist vera með mörg dæmi um að fólk hafi verið ofrukkað um kílómetragjaldið. „Við erum líka með dæmi um fólk sem hafði samviskusamlega sent inn upplýsingar í gegnum island.is um kílómetrastöðu ökutækja sinna, bæði innan tilskilins frests í janúar og síðan aftur mánuði seinna, þ.e. í febrúar, en verið ofrukkað. Við erum einnig með önnur tilvik þar sem bíll var skoðaður snemma á síðasta ári og síðan aftur snemma á þessu ári, þannig að opinberir aðilar höfðu öll gögn í höndum um ekna kílómetra. En samt var fólk að fá rukkun fyrir akstur í einn mánuð, sem jafnvel miðaðist við hálfs árs akstur,“ segir hann. Runólfur segir að starfsmenn Skattsins hafi viljað meina að aðeins mjög lítið hlutfall bifreiðaeigenda hafi lent í ofrukkun, en miðað við umfjöllun á samfélagsmiðlum og þau símtöl sem Félag íslenskra biðreiðaeigenda hefði fengið virtist það ekki vera raunin. Sinnt með hangandi hendi „Allar línur loguðu hér um síðustu mánaðamót,“ segir Runólfur, en þar hafi m.a. verið á ferð fólk sem náði engu sambandi við Skattinn og svo virtist sem þjónustan þar hefði ekki verið til staðar til að mæta álagi vegna rangra reikninga. Hann nefnir að rangir reikningar hafi ekki verið leiðréttir fyrr en í fyrsta lagi um næstu mánaðamót á eftir og í sumum tilvikum hafi það tekið enn lengri tíma. „Það er ekki gott þegar hið opinbera sinnir svona framkvæmd með hangandi hendi,“ segir Runólfur. Kerfin frá veitufyrirtæki? „Það er ekki eins og við séum að finna upp þessi tölvukerfi í dag, þetta er allt til. Við erum að fá innheimtur í þessum dúr fyrir hita og rafmagn frá veitufyrirtækjum. Þetta er þekkt fyrirkomulag og notkun er áætluð ef ekki er til mælastaða. En einhver grallarinn sagði að þeir hefðu greinilega keypt kerfin frá einhverju veitufyrirtæki, en þar vissu menn að þar væri meiri heitavatnsnotkun í febrúar og þess vegna hefðu reikningarnir hækkað,“ segir hann. Hann segir mikilvægt að fólk skili inn kílómetrastöðunni mánaðarlega í gegnum island.is, en þeir sem hafi ekki aðstöðu til þess hafi engan annan kost en að láta lesa af mælinum á skoðunarstöðvum. Það kosti hins vegar 700–800 krónur í hvert sinn. Eðlilegt væri að fólk gæti sent inn gögn endurgjaldslaust, ef það treysti sér ekki til þess að nota rafrænu gáttina, en ekki hafi verið komið til móts við það. Andvana fætt Spurður hvaða einkunn hann gæfi stjórnvöldum fyrir framkvæmd innheimtu kílómetragjaldsins, sagði Runólfur að því miður væri málið andvana fætt, þegar verið væri að sníða af hnökra langt inn í nýtt ár. „Þessi fyrstu skref fá því miður falleinkunn,“ segir Runólfur. Hann nefnir einnig að FÍB o.fl. hafi fengið heimsókn í desember sl. frá samtökum breskra bílaleiga, sem hafi verið að undirbúa sína félagsmenn fyrir fyrirhugaða upptöku kílómetragjalds á rafbílaárið 2028. Hér hafi lögin verið samþykkt í desember og komið til framkvæmda 1. janúar. „Það er eins og vinnan hjá stjórnvöldum hafi ekki farið af stað fyrr en búið var að samþykkja lögin,“ segir hann. Gagnrýni á samfélagsmiðlum „Getur einhver útskýrt þetta km gjald fyrir mér? Ég sendi inn km töluna 26. des. og fékk þá 17.000 kr áætlun sem var greidd í byrjun febrúar, sendi þá inn nýja km stöðu, þar sem ég hafði ekið um 400 km í janúar. Fékk svo reikning fyrir febrúar sem ég greiddi, 3.000 kr. Þannig að ég hef greitt 20.000 kr fyrir að keyra um 800 km, sem að eru 25kr/km en á að vera 6,95kr/km. Skil þetta ekki.“ „Hvers vegna ætti ég og yfir 400.000 Íslendingar, að þurfa að ganga í gegnum þann vanda að skrá ekna kílómetra fyrir einhvern annan? Væri ekki rökréttara að fimm eldsneytissalar greiddu þennan skatt? Er það ekki rökrétt að því lengra sem ökumaður þarf að keyra, því meira eldsneyti þarf hann að kaupa? Kílómetragjald er hreint rugl!“ „Nú hef ég verið að fylgjast með umræðunni um þetta kílómetragjald. Hef sent email á Skattinn og fátt um svör eða mjög loðin Nú held ég að það sé komin tími til að fá sem flesta fréttamiðla til að takka þetta upp og jafn vel að koma þessu í Kveik. Þetta er að verða ansi mikið rugl og það væri best að þeir sem eru að vinna að þessu og líka þeir sem komu þessu á, svari fyrir alþjóð í eitt skipti svo þetta komist á hreint.“ „Smá upplýsingar sem ég fékk frá Skattinum. Það virðist vera sem kerfið hafi hrunið og farið í tómt tjón fyrir það fólk sem skráði inn kílómetrastöðuna í lok desember, s.s. fyrir áramótin, og eru þess vegna að fá óraunhæfa reikninga. Það er verið að vinna í þessum ruglingi sem varð í kerfinu og gera leiðréttingar, það bara tekur smá tíma gerist ekki á einum degi því þetta er fjöldi fólks og farartæki.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Kílómetragjald Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Útreikningar á kílómetragjaldi út úr kú Rangt mat ráðuneytisins Sveitirnar krafðar um kílómetragjald að ósekju Byggja tugmilljóna reikning ekki á raunakstri » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Sprengju kastað fyrir utan heimili borgarstjórans Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Ingvar sigursæll um helgina Hver er Mojtaba Khamenei? Myndskeið: Allt sauð upp úr í Skotlandi Umræðan Sópa, sópa, sópa Framsókn treystir þjóðinni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta atvik er ótækt“ Uppgjöf í viðureigninni við verðbólgu og vexti Fær tilkynningar þegar skotflaugar stefna á Kænugarð Myndir: Hvalreki í Kjálkafirði Mest lesið Í gær Í vikunni Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Özur Lárusson Björn Bjarnason: Utanríkisráðuneytið fallið Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Segir þýðingu í kvöldfréttum ranga: Engar undanþágur í boði Telja auglýsingu vera löglega Gul veðurviðvörun fyrir stærstan hluta landsins Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Beðið eftir rekstrarleyfi landlæknis Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Svikahrappar náðu milljarði Gauti er eitt barnanna sem lifðu af 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Nýjast á mbl.is » Sprengju kastað fyrir utan heimili borgarstjórans Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Ingvar sigursæll um helgina Hver er Mojtaba Khamenei? Myndskeið: Allt sauð upp úr í Skotlandi Umræðan Sópa, sópa, sópa Framsókn treystir þjóðinni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Jarðskjálftar í Mýrdalsjökli Fær tilkynningar þegar skotflaugar stefna á Kænugarð Svaðilför á Borgarfirði eystri Rósa Björk nýr formaður VG Mest lesið Í gær Í vikunni Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á

Share this article