Lögreglubílar standa við lögreglustöðina á Hverfisgötu. Mynd úr safni.RÚV / Ragnar Visage Lögreglumenn voru kallaðir til vegna minnst sex umferðarslysa á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt. Samkvæmt dagbók lögreglunnar slasaðist enginn í óhöppunum en einn sem slysi olli var handtekinn grunaður um ölvun við akstur. För nokkurra ökumanna var stöðvuð og þeir sektaðir fyrir umferðarlagabrot á borð við akstur án þess að hafa til þess réttindi. Lögreglumenn sinntu einnig útköllum vegna innbrots og hnupls úr verslunum og fjarlægðu skráningarnúmer þriggja óskoðaðra bíla.