Innlent | mbl | 14.4.2026 | 12:55 Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Freyr Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Alls tóku sex lögreglubílar og fjögur lögreglumótorhjól þátt í eftirförinni seinnipartinn í gær sem endaði á því að lögreglubíll keyrði inn í vinstri hlið bifreiðar. Ökumaðurinn er í haldi lögreglunnar. Það voru vegfarendur í Borgarnesi sem upphaflega tilkynntu lögreglunni um aðfinnsluvert ökulag bílsins. Frétt af mbl.is Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Að sögn Árna Friðleifssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, mætti lögreglan á Vesturlandi bílnum við Kúludalsá, sunnan við Akrafjall skammt frá Hvalfjarðargöngunum, og gaf stöðvunarmerki, sem ökumaðurinn sinnti ekki. Upphófst þá eftirförin. Lögreglan var með mikinn viðbúnað í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson Með naglamottur í Mosfellsbæ Eftir að bíllinn var kominn í Hvalfjarðargöngin fékk lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beiðni frá lögreglunni á Vesturlandi um aðstoð. Lögreglan var því í viðbragðsstöðu á Kjalarnesi. „Við erum með þrjá til fjóra bíla sem fara í þetta verkefni. Það var reynt að stöðva för með naglamottum strax uppi í Mosfellsbæ en það bar ekki tilætlaðan árangur,” greinir Árni frá, aðspurður, en ökumaðurinn ók fram hjá mottunum. Lögreglumaður á mótorhjóli. mbl.is/Árni Sæberg Árni kveðst ekki geta staðfest hraða bílsins á meðan á eftirförinni stóð en gögn úr ratsjám lögreglubíla benda til þess að hann hafi verið á 150 til 170 km hraða. Höfðu áður reynt að aka utan í bílinn Eins og komið hefur fram lauk eftirförinni við Stefnisvog í Vogabyggð í Reykjavík. Áður höfðu lögreglupóstar voru settir upp bæði á Miklubraut, Reykjanesbraut og neðar á Sæbrautinni með naglamottum ef ske kynni að bílnum yrði ekið þangað. Frétt af mbl.is Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Við Stefnisvog brá lögreglan á það ráð að keyra inn í hlið bílsins. Það hafði áður verið reynt, í hringtorgi á Vesturlandsvegi, en bar ekki árangur, að sögn Árna. Ökumaðurinn var stöðvaður við Stefnisvog. Ljósmynd/Aðsend Mikil hætta á ferð Hann segir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu hafa fengið tilkynningu vegna bílsins klukkan 15.36. Vegna þess hversu margir voru í umferðinni á þessum tíma, bæði bílar, gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk, hafi hún litið málið alvarlegum augum og talið mikla hættu vera á ferð. „Við mátum það svo að þetta væri einstaklingur sem yrði að stoppa með þeim ráðum sem þurfti,” útskýrir hann. Ljósmynd/Aðsend Beitti ekki rafbyssunni Við eftirförina hafði ökumaðurinn áður hægt á sér en gefið síðan í. Þegar hann hægði á sér við Stefnisvog var því ákveðið að keyra inn í hliðina á honum til að freista þess að stöðva för hans. Að því loknu stökk lögreglumaður út úr lögreglubíl sínum með rafbyssu í hendi en hann þurfti ekki að beita henni. Ökumaðurinn var síðan yfirbugaður af hópi lögreglumanna, eins og sést í myndskeiðinu að ofan. Árni Friðleifsson. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir Ökumaðurinn er í haldi lögreglu en hundur var einnig með honum í bílnum. Grunur lék á um að ökumaðurinn hefði verið undir áhrifum og því var dregið úr honum blóð til rannsóknar. „Ég er ánægður með að það slasaðist enginn, hvorki lögreglumaður, né þessi ökumaður. Það má búast við að þetta verkefni lögreglu hafi farið fram hjá þúsundum manna sem eru í umferðinni. Sem betur fer slasaðist enginn. Það væri óskandi að svona mál kæmu ekki upp en því miður er veruleikinn annar, bætir Árni við, aðspurður. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Upp að hlið Mickelson og Faldo Starf Arteta í hættu Samfelldar upplýsingar um stöðu barna aðgengilegar Frosti Logason sameinar tvö fyrirtæki Umræðan Tækifærið er núna til alvöru breytinga „Þú gengur ekki svo auðveldlega út úr ESB“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Hagur verkafólks að standa utan ESB Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Lést eftir fall í Ölfusá Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Áhyggjur af mikilli slysahættu og skora á ríkið Hagur verkafólks að standa utan ESB Lögregla setur einstefnu á valda vegi Krefur ráðherra svara um ESB-aðlögun Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Lést eftir fall í Ölfusá Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Þekkt leikkona styður Grindavík Nýjast á mbl.is » Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Upp að hlið Mickelson og Faldo Starf Arteta í hættu Samfelldar upplýsingar um stöðu barna aðgengilegar Frosti Logason sameinar tvö fyrirtæki Umræðan Tækifærið er núna til alvöru breytinga „Þú gengur ekki svo auðveldlega út úr ESB“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Ræða gagnrýni á stórtónleikana Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Lést eftir fall í Ölfusá Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Áhyggjur af mikilli slysahættu og skora á ríkið Hagur verkafólks að standa utan ESB Lögregla setur einstefnu á valda vegi Krefur ráðherra svara um ESB-aðlögun Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Lést eftir fall í Ölfusá Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Þekkt leikkona styður Grindavík