Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ökumaður kærður fyrir að troðfylla bíl sinn af fólki — einn í skottinu

Read Full Article →

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kærði ökumann í gærkvöld eða nótt fyrir að bjóða of mörgum far, meðal annars kom einn sér fyrir í skottinu á bílnum. Lögreglubíll í Austurstræti. Mynd úr safni.RÚV / Vignir Már Eiðsson Annar ökumaður hlaut kæru fyrir að aka á 119 kílómetra hraða í Kópavogi þar sem leyfður hámarkshraði er áttatíu. Hann reyndi en tókst ekki að komast undan á hlaupum að því er segir í dagbók lögreglu. Fleiri bílstjóra bíður sekt fyrir hraðakstur í vorinu og akstur undir áhrifum fíkniefna ásamt því sem einn farþegi var kærður fyrir hnífaburð. Auk þessa rannsakar lögreglan innbrot í heimahús í Árbæjarhverfi þar sem munum var stolið.

Share this article