Innlent | mbl | 14.4.2026 | 16:43 Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Setja bókamerki „Ég er bara í eldhúsinu heima hjá mér þegar ég heyri sírenur á fullu. Ég kíki út og sé lögreglubílinn klessa á hinn bílinn einu sinni. Þá hugsaði ég með mér að ég yrði að taka þetta upp.“ Þetta segir Glódís Gabríela, íbúi í Vogabyggð, sem náði mögnuðu myndskeiði af lögreglu reyna að stöðva för ökumannsins sem veitt var eftirför skammt frá Hvalfjarðargöngum og alla leiðina til Reykjavíkur eftir að hafa ekki virt stöðvunarmerki lögreglu. Frétt af mbl.is Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Ók utan í bílinn ofar á Kleppsmýrarvegi Þegar bílnum var ekið niður Kleppsmýrarveg og hann var kominn aðeins niður fyrir umferðarljósin á gatnamótum Kleppsmýrarvegar og Skútuvogs segir Glódís að lögregla hafi reynt að stöðva för ökumannsins með því að keyra utan í hann. Hún hafi þá tekið upp símann og á myndskeiðinu má sjá hvernig lögreglubíll keyrir á eftir bílnum og reynir að stöðva för hans með því að keyra utan í vinstri hlið hans. Bíllinn rásar en ökumanninum tekst að ná valdi á honum með því að keyra upp á gangstétt næst íbúðablokkum í Bátavogi og Stefnisvogi. Fjórir lögreglumenn á bifhjólum fylgja lögreglubílnum eftir. Undir lok myndskeiðsins má þá sjá hvernig lögreglubíllinn staðsetur sig aftur vinstra megin við bílinn eins og hann undirbúi aðra tilraun til að keyra utan í hlið bílsins. Nokkrum andartökum síðar var bílnum ekið inn á malarplan í Stefnisvogi þar sem lögregla stöðvaði för hans með því að keyra utan í vinstri hliðina og ökumaðurinn var handtekinn. Frá aðgerðum í Stefnisvogi í gær. Ljósmynd/Aðsend Frétt af mbl.is Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Heppin að hafa ekki verið úti á þessum tíma Glódís segir marga íbúa hafa fylgst með atburðarásinni í gær og að oft séu margir á ferli á gangstéttinni þar sem glæfraaksturinn átti sér stað. „Ég labba oft þarna og er bara heppinn að hafa ekki verið úti á þessum tíma. Ég fékk einmitt komment á videoið á TikTok: „This car almost drove over my girlfriend,“ eða eitthvað svoleiðis.“ Glódís Gabríela segir upplifunina hafa verið mjög taugatrekkjandi. „Þetta var bara sjokk. Maður var ekki að búast við að sjá þetta út um gluggann.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Snýst um meira hjá Úkraínu Lego notað í stríðsáróðri Arne Slot hefur trú á kraftaverki Rekstrarniðurstaða Garðabæjar jákvæð um 2,8 milljarða Umræðan Tækifærið er núna til alvöru breytinga „Þú gengur ekki svo auðveldlega út úr ESB“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Teljum okkur vera komna með skýra mynd af atburðarásinni“ Inga: „Mikil eftirsjá að Guðmundi Inga“ Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Lést eftir fall í Ölfusá Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Segir úrsögnina liggja þungt á flokknum Áhyggjur af mikilli slysahættu og skora á ríkið Hagur verkafólks að standa utan ESB Mánaðarleg hækkun leigu gerð óheimil Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Lést eftir fall í Ölfusá Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Nýjast á mbl.is » Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Snýst um meira hjá Úkraínu Lego notað í stríðsáróðri Arne Slot hefur trú á kraftaverki Rekstrarniðurstaða Garðabæjar jákvæð um 2,8 milljarða Umræðan Tækifærið er núna til alvöru breytinga „Þú gengur ekki svo auðveldlega út úr ESB“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hagur verkafólks að standa utan ESB Inga: „Mikil eftirsjá að Guðmundi Inga“ Kristrún staðið sig best en Inga verst Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Lést eftir fall í Ölfusá Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Segir úrsögnina liggja þungt á flokknum Áhyggjur af mikilli slysahættu og skora á ríkið Hagur verkafólks að standa utan ESB Mánaðarleg hækkun leigu gerð óheimil Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Lést eftir fall í Ölfusá Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi