Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Samgöngu- og hafnarbætur í Þorlákshöfn ýti undir samkeppni

  • What: Transport and port improvements are under discussion
  • Impact: Increased competition in shipping could affect costs
Read Full Article →

Flýta þarf framkvæmdum við Þrengslaveg og Þorlákshafnarhöfn að mati Félags atvinnurekenda, FA. Samgönguúrbætur og bætt hafnaraðstæða yrði ekki aðeins samgöngubót heldur myndi það ýta undir virka samkeppni í skipaflutningum. Þetta kemur fram í umsögn félagsins við Samgönguáætlun . Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA, vekur athygli á umsögninni í aðsendri grein á Vísi í dag . Flutningskostnaður hlutfallslega hærri vegna legu landsins Í umsögninni er bent á að fákeppni hafi einkennt skipaflutningamarkað á Íslandi um áratugaskeið. „Ónóg samkeppni, hátt flutningsverð og ógegnsæjar gjaldskrár stóru skipafélaganna, Eimskips og Samskipa, eru á meðal algengustu umkvörtunarefna félagsmanna FA, sem flestir hverjir stunda inn- eða útflutning í einhverjum mæli,“ ritar Ólafur. Hann segir virka samkeppni í þessum geira mikilvæga, enda hafi flutningskostnaður meiri áhrif á vöruverð hér á landi en víðast hvar annars staðar vegna legu Íslands. Þá hafi Samkeppniseftirlitið, SKE, beint tilmælum til stjórnvalda um aðgerðir til að efla samkeppni á flutningamarkaði. Það gerði SKE eftir að í ljós kom að Eimskip og Samskip höfðu átt í ólöglegu samráði. Forsendur Smyril Line brostnar Ólafur segir forsendur fyrir milljarðafjárfestingum Smyril Line brostnar eftir að framkvæmdum við viðlegukant í Þorlákshöfn var frestað. Félagið hafi ætlað að uppfæra skipakost sinn á siglingaleiðinni milli Þorlákshafnar og Evrópu. „Fyrir liggur brýn þörf á að framlengja Skarfaskersbryggju þannig að nýju skipin geti lagzt þar að. Sú stefnubreyting, sem felst í tillögunni, brýtur með alvarlegum hætti gegn réttmætum væntingum fyrirtækisins um stuðning stjórnvalda við uppbyggingu fullnægjandi hafnaraðstöðu.“ Þá sé vegatenging bæjarins um Þrengsla- og Þorlákshafnarveg lakari að gæðum en aðrar aðalleiðir á suðvesturhorninu, „burðarþol minna, vegurinn mjórri, vetrarþjónusta minni og lokanir tíðari“. Því leggur FA til tvær breytingar á samgönguáætlun. Annars vegar að fjárveitingar til framkvæmda við breikkun Þrengslavegar færist á árin 2026 og 2027 í stað 2029 og 2030. Hins vegar að fjárveitingar vegna lengingar Skarfaskersbryggju í Þorlákshöfn færist á árið 2026 í stað 2029-2030 og að hlutfall kostnaðarþátttöku ríkisins verði óskert í 60% í stað 40% eins og lagt er til í tillögu að samgönguáætlun.

Share this article