Drónar og gervigreind geta nú aðstoðað breska bændur í baráttunni við illgresi með tilkomu nýrrar tækni sem skannar og greinir akra þeirra og tún. Vísindamenn við konunglega landbúnaðarháskólann í Cirencester í Gloucestershire hafa notað dróna og gervigreind til þess að svífa yfir akra og greina þar með illgresi sem kann að leynast í túninu. Baráttan við illgresi getur reynst bæði erfið og tímafrek og með þessari tækninýjung er vonast til þess að hægt sé að forðast stórfellda efnaúðun með því að staðsetja illgresið nákvæmlega. „Í stað þess að úða skordýraeitri eða illgresiseyði yfir heilan akur, velurðu ákveðin svæði,“ segir dr. Emmanuel Zuza, dósent í umhverfisstjórnun og sjálfbærni við háskólann. Zuza ræddi um verkefnið við BBC. Unnið að því að greina skordýr og meindýr Nemendur við landbúnaðarháskólann í Cirencester vinna nú að því að þjálfa gervigreindarforrit til þess að greina nákvæmlega mismunandi tegundir illgresis sem kunna að leynast á ökurm bændanna. Eins er unnið að því að þjálfa líkönin til þess að greina skordýr og önnur meindýr sem herja á tún. Rannsóknir eru nú gerðar á landsvæði háskólans en brátt er stefnt að því að prófa drónana á starfandi býlum í Bretlandi. „Við erum þegar í sambandi við bændur í nágrenni háskólans þar sem við munum kynna drónana til að sjá hvernig við getum skoðað mismunandi tegundir uppskeru,“ segir Zuza.