Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Niðurrif hafið á íbúðarhúsum í Grindavík

Read Full Article →

Niðurrif hófst í morgun á íbúðarhúsum í Grindavík sem úrskurðuð hafa verið ónýt eftir jarðhræringar. Bæjarstjórn hefur ákveðið að rífa eigi minnst 40 íbúðarhús í bænum. Niðurrif á þremur þeirra við Mánagötu og Mánagerði hófst í morgun. Áður var búið að rífa eitt hjúkrunarheimili í bænum og gróðurhús. Öll húsin eru á sprungusveimum og hafa verið úrskurðuð ónýt. Jón Gunnar Margeirsson, framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Jóns og Margeirs, segir framkvæmdir fara vel af stað þrátt fyrir slæmt veður. Gæta þurfi fyllsta öryggis við framkvæmdina. „Við erum alveg á öruggu svæði hérna,“ segir hann. „En við megum hins vegar ekki fara neitt út úr vélunum og þetta er allt unnið með vélum,“ segir Jón Gunnar. Komið er leyfi fyrir niðurrifi á tveimur öðrum húsum til viðbótar við Austurveg og einu iðnaðarhúsnæði annars staðar í bænum. Jón Gunnar segir niðurrifið nauðsynlegan hluta af endurkomu Grindavíkur. „Þó að það sé dapurt að þurfa að rífa þetta þá er þetta hluti af uppbyggingu bæjarins,“ segir hann „Við förum ekki af stað með uppbyggingu nema með því að rífa og gera við sprungur til að gera bæinn öruggan og það er það sem við viljum.“

Share this article