Niðurrif fyrstu ónýtu íbúðarhúsanna hófst í Grindavík í gærmorgun. Verktakinn segir sárt að þurfa að rífa húsin en það þurfi til að hægt verði að byggja upp bæinn og fylla í sprungur undir þeim. Eftirsjá af húsinu Tugir íbúðarhúsa í Grindavík hafa verið metin gjörónýt. Mánagata 21 er eitt af þeim fyrstu sem er rifið. Þar bjó Ingibjörg Reynisdóttir. „Ég var fyrir löngu búin að segja að ég yrði mjög fegin að þetta hús yrði rifið en svo þegar kemur að því þá er maður ekki tilbúinn,“ segir hún. „Þó að þetta sé dauður hlutur þá er bara allt of mikið af minningum þarna, allt of mikið - allt of mörg handtök og eftirsjá. Og líka bara í samfélaginu hérna, ekki bara í húsinu,“ bætir hún við. Ingibjörg keypti húsið fyrir þrjátíu og fimm árum og bjó í því þar til Grindavík var rýmd í nóvember 2023. „Ég kaupi þetta 1991 með fyrrverandi manninum mínum og hér fæðast börnin okkar og er þeirra æskuheimili. Hér ætlaði ég að vera svona sjö til tíu ár í viðbót en það hafðist ekki,“ segir Ingibjörg. Vinna við niðurrif fyrstu íbúðarhúsanna hófst í morgun; áætlað er að rífa húsið hennar Ingibjargar, Mánagötu 19 og Mánagerði tvö sem er í götunni fyrir ofan. Áður hafði hluti hjúkrunarheimilisins verið rifinn og gróðurhús Bioeffect. „Við erum að byrja í niðurrifum á húsum, sem er partur af uppbyggingu Grindavíkur. Það þarf að byrja að rífa svo við getum byggt upp og gert við sprungur undir þeim. Svo er bara að byggja upp, þó að það sé auðvitað sárt að þurfa að rífa þessi hús þá verðum við bara að gera það til að geta haldið áfram,“ segir Jón Gunnar Margeirsson, framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Jóns og Margeirs. Húsin sem þarf að rýma eiga það sameiginlegt að liggja á eða við sprungusveima í bænum. Áformað er að rífa hátt í 40 ónýt hús. „Enda hef ég ekki not af því svona, ég get ekki búið í því - en sárt er það samt, það er virkilega sárt að missa heimili sitt og vera ekki tilbúinn í það,“ segir Ingibjörg. „Þetta er ein af niðurstöðunum til þess að hægt sé að byggja upp, þá verða svona hús að víkja,“ bætir hún við. Áforma að opna matvöruverslun í Grindavík Talandi um uppbyggingu í Grindavík þá áforma hjón í bænum að opna þar matvöruverslun í vikunni. „Ég er að fylla í hillur, það á að opna búðina á næstu dögum - sem fyrst. Við erum bara að leggja lokahönd á þetta,“ segir Bjarney Högnadóttir. Búðin verður á Víkurbraut og kallast Víkurval. Í Grindavík hefur ekki verið matvörubúð frá rýmingu. „Það vantar búð. Það er alveg nauðsynlegt að hafa eitthvað til að geta bjargað sér á. Það er gaman að vera partur af uppbyggingunni, sem mér finnst þetta vera, og leggja einhverja hönd á það, að hjálpa til,“ segir Bjarney jafnframt.