- What: France is preparing an international effort to secure the Hormuz Strait.
- Impact: This could affect global oil supply and shipping routes.
Emmanuel Macron Frakklandsforseti sagði í kvöld að Frakkland væri að undirbúa alþjóðlegt verkefni í samstarfi við bandamenn sína til að opna Hormússund á ný þegar hernaðaraðgerðir á svæðinu minnka að umfangi. Macron lét ummælin falla um borð í franska flugmóðurskipinu Charles de Gaulle, sem kom til Kýpur í dag. „Markmiðið væri að geta, þegar þessi átök hafa dvínað, fylgt olíuskipum og gámaskipum í gegnum svæðið á fullkomlega friðsamlegan hátt og opnað á ný gas- og olíuleiðina út úr Hormússundi til að tryggja framboð á alþjóðlegum mörkuðum.“ Hann bætti við að Frakkland hefði þegar hafið viðræður við önnur Evrópu- og Asíuríki, þar á meðal Indland. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist í kvöld að hann íhugi að taka sundið yfir. Sjá einnig Lét ummælin falla eftir samtal við Pútín Hér má sjá ágæta útskýringu á sundinu frá árinu 2019.