Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Franskt flugmóðurskip á leið að Rauðahafi

Read Full Article →

Franska flugmóðurskipið Charles de Gaulle lagði af stað áleiðis að Rauðahafinu í gær. Skipinu er ætlað að vera tilbúið til aðgerða til að tryggja öryggi siglingaumferðar um Hormússund þegar friður kemst á í Mið-Austurlöndum. Frönsk yfirvöld vilja með þessu sýna að þau séu tilbúin að tryggja öryggi við Hormússund og séu fær um að gera það, sagði ónafngreindur aðstoðarmaður Emmanuels Macrons Frakklandsforseta við fjölmiðla. Macron og Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands leiða fjölþjóðlega hernaðaraðgerð sem ætlað er að tryggja siglingar um Hormússund. Yfir fjörutíu þjóðir hafa komið að skipulagi og undirbúningi aðgerðarinnar. Aðgerðin verður varnarlegs eðlis og hefst ekki fyrr en friður kemst á í Mið-Austurlöndum. Frakklandsforseti hefur áhyggjur af stigmögnun átaka Macron sagði í færslu á samfélagsmiðlinum X að hann hefði rætt við Masoud Pezeshkian forseta Írans í gær og tjáð honum að hann hefði miklar áhyggjur af stigmögnun átaka í Mið-Austurlöndum á sama tíma og friðarviðræður væru í gangi. Macron sagði í færslu sinni að deiluþjóðir verði að aflétta öllum bönnum á siglingum um Hormússund án tafar og án skilmála og vísaði þar til herkvíar Bandaríkjanna á höfnum í Íran og tangarhalds Írana á þessari mikilvægu siglingarleið. Vel útbúið flugmóðurskip Flugmóðurskipið Charles de Gaulle er flaggskip franska sjóhersins. Um borð eru 20 Rafale orrustuþotur og skipið er í fylgd nokkurra freigáta. Samkvæmt franska varnarmálaráðuneytinu siglir skipið í gegnum Súesskurðinn og áfram til suðurhluta Rauðahafs þar sem það verður til taks þegar aðstæður skapast fyrir hugsanlegar aðgerðir við Hormússund.

Share this article