Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sex franskir hermenn særðust og einn er látinn eftir drónaárás

Read Full Article →

Sex franskir hermenn særðust og einn er látinn eftir drónaárás nærri Erbil í Írak í gær. Emanuel Macron, forseti Frakklands, tilkynnti um fall hermannsins í færslu á samfélagsmiðlinum X . Hann sagði fleiri franska hermenn hafa særst en tilgreindi ekki fjölda þeirra og vottaði fjölskyldu hermannsins samúð sína. Áður hafði verið greint frá því að sex franskir hermenn hafi særst. Ekki liggur fyrir hvort sá látni hafi verið einn þeirra. Hermennirnir voru að þjálfa liðsmenn kúrdískra öryggissveita í aðgerðum gegn hryðjuverkum á herstöð í Mala Qara sem er um 40 kílómetra frá Erbil. Fjölmargar árásir hafa verið gerðar á þessu svæði síðan átök brutust út í Mið-Austurlöndum. Sams konar árás var einnig gerð á ítalska herstöð í Erbil á miðvikudag. Enginn særðist í þeirri árás en ítölsku hermennirnir hafa verið tímabundið kallaðir heim frá herstöðinni. Hermenn frá fjölda landa, þar með talið Frakklandi og Ítalíu, eru staðsettar í héruðum Kúrda í Írak til að þjálfa kúrdískar öryggissveitir. Þjálfunin er liður í alþjóðlegri baráttu gegn íslömskum hryðjuverkasamtökum og er að frumkvæði Bandaríkjanna. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um tilkynningu Frakklandsforseta um fall hermannsins.

Share this article