- What: French soldiers injured in drone attack near Erbil
- Impact: Military training exercise in Iraq
Sex franskir hermenn særðust í drónaárás nærri Erbil í Írak í gær. Hermennirnir voru að þjálfa liðsmenn kúrdískra öryggissveita í aðgerðum gegn hryðjuverkum á herstöð í Mala Qara sem er um 40 kílómetra frá Erbil. Fjölmargar árásir hafa verið gerðar á þessu svæði síðan átök brutust út í Mið-Austurlöndum. Sams konar árás var einnig gerð á ítalska herstöð í Erbil á miðvikudag. Enginn særðist í þeirri árás en ítölsku hermennirnir hafa verið tímabundið kallaðir heim frá herstöðinni. Hermenn frá fjölda landa, þar með talið Frakklandi og Ítalíu, eru staðsettar í héruðum Kúrda í Írak til að þjálfa kúrdískar öryggissveitir. Þjálfunin er liður í alþjóðlegri baráttu gegn íslömskum hryðjuverkasamtökum og er að frumkvæði Bandaríkjanna.